I: http://tettaerlifid.blogspot.com/2013/02/nu-nylega-var-high-fiveaur-mjog.html
II: http://tettaerlifid.blogspot.com/2013/02/ar-sem-manudagsormurinn-i-siustu-viku.html
þriðjudagur, 26. febrúar 2013
laugardagur, 23. febrúar 2013
Fríða og Klassart í Pálsson og litli
Það skiptir ekki máli hvenær unnusta mín opnar munninn, hún hljómar alltaf unaðslega. Hún hljómar sérstaklega vel í útvarpi, og hvað þá eftir tíu daga veikindi. Það er fátt betra en að byrja laugardaga á ferð í Útvarpshúsið.
Systkinin spiluðu Pays du Rêve eftir Fridu og lag sem hefur ekki enn fengið titil eftir Klassart.
Og svo blúsuðu þau sig út úr Útvarpshúsinu:
Hér er hægt að hlusta á viðtalið og lögin:

Simmi
Ég fór á Edduna í fyrsta skipti um síðustu helgi og sat við hliðina á Simma í Simma og Jóa og frú. Hann hló manna mest þegar Steindi kyssti alla á sviðinu, svo mikið að það fór um frúnna - og mig líka reyndar - sem reyndi að róa sinn mann niður.
Ég fór í Hörpu með þessu yndislega og rauða fólki. Svarfdælingurinn var tilnefndur en vann ekki enda eru þetta bara asnalega verðlaun.

sunnudagur, 17. febrúar 2013
Düğün
Ástin í lífi mínu og tilvonandi eiginkona mín tók bónorði mínu á föstudaginn. Á baugfingri ber hún hring sem pabbi gaf mömmu fyrir tæpum þremur áratugum. Hringurinn er frá Tyrklandi og kemur sennilega frá ömmu minni (þetta hlýtur að rifjast upp fyrir pabba).
mánudagur, 11. febrúar 2013
Pays de Rêve
Sumum finnst gott að nýta helgina til að hvíla lúin bein og safna kröftum fyrir komandi vinnuviku. Jújú, það er fínt. En það er líka fínt að taka upp tónlistarmyndband frá morgni til kvölds og bruna svo beint í útskriftarveislu aldarinnar. Myndbandið er við lag Fríðu, Pays de Rêve, sem var tekið upp í Stúdíó Ógæfu í þarsíðustu viku. Myndbandið verður tilbúið í þessari viku og er stefnt á frumsýningu á lagi og vídjói næsta föstudag, 15. feb.
Særún tók myndbandið upp og ég gerði eitthvað, t.d. að raða upp borðum. Hvorugt okkar hefur gert svona áður (ég hef að vísu komið við sögu í íslenskum og erlendum kvikmyndum, en þá hinum megin við linsuna; það er efni í aðra færslu) og því var öll uppsetning frekar amatör; mónitorinn er á neðsta borðinu, myndavélin á efsta:
Þar sem við vorum með myndvarpa í litlu 53m2 íbúðinni okkar, og öll húsgögn á röngum stað, nýttum við tækifærið og sendum pabba litla afmæliskveðju.
Og hér er útskriftarparið fína (ég veit ekki afhverju þau völdu okkar gjöf fyrir myndatökuna):
Ég tók orminn í veislunni og Linda Sæ tók hann upp. Í kjölfarið sömdum við um að einu sinni í viku myndi hún pósta ormamyndbandi af mér sem verður aldrei tekið á sama stað. Skrifað var undir fleiri bloggsamninga þetta kvöld; bloggið hefur risið upp úr ösku sinni!

mánudagur, 4. febrúar 2013
Merkilegir og ómerkilegir staðir á Íslandi I - HLEMMUR
Ég hélt að ég væri búinn að tæma brunninn með síðustu tveimur færslum þegar ég var beðinn um að skrifa um sögu Hlemms. Og að sjálfsögðu verð ég við þeirri ósk enda þykir mér ósköp vænt um staðinn. Ég er líka frekar hugmyndasnauður bloggari þannig ég hef ákveðið að búa til þennan flokk bloggfærslna sem mun vonandi einhvern tíma telja fleiri en eina færslu. Fyrirmynd að flokknum er vefsíðan Hugi.is en þar skrifa meðlimir um allt og ekkert; margar færslur hefjast til að mynda á orðum eins og: "Sælir strákar. Ég var að skoða Sturlungu og ætla að skrifa nokkur orð um hana..." Fyrirmyndarblogg. Vonandi verður þessi síða jafn handahófskennd og einlæg.
Nafnið Hlemmur vísar til brúarstubbs sem þar var yfir lækinn Rauðará, sem Rauðarárstígur í Reykjavík er kenndur við.
Stuttu eftir stofnun Vatnsveitu Reykjavíkur var sett þar upp vatnsþró fyrir ferðalanga til að brynna hesta sína. Gasstöð Reykjavíkur var svo starfrækt við Hlemm á árunum 1910-1956. Stöðin framleiddi gas úr innfluttum kolum til eldunar og lýsingar. Lýsingin var góð búbót fyrir Reykvíkinga því áður höfðu þeir þurft að sætta sig við steinolíuljósker á stangli sem sumir kölluðu fremur villuljós en götulýsingu. Árið 1918 var settur upp gasgerðarofn við gasstöðina sem nýtti hitann frá gasframleiðslunni sem annars fór til ónýtis. Eftir stofnun Rafmagnsveitu Reykjavíkur árið 1921 var gasið nær eingöngu nýtt til eldamennsku og undir lok fyrri heimsstyrjaldarinnar störfuðu í húsinu fjórir bakarar. Þykir þetta sýna að Íslendingar hafa löngum nýtt hitann í kringum sig.
Í dag er hvorki að finna við Hlemm vatnsþró né bakara, heldur miðstöð strætisvagnasamganga í Reykjavík, lögreglustöð, óreglumenn og klyfjahest sem Sigurjón Ólafsson (1908-1982, sjá Merkilegir og ómerkilegir staðir á Íslandi II - HÖFÐI) hjó til minnis um hina gömu vatnsþró.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)