Sigurboginn á Charles de Gaulle-torgi í París er í flokki með herra Eiffel, fröken Louvre, dömunni Notre Dame, hinni heilögu Sacre Coeur og fleiri þekktum minnismerkjum þessarar vinsælu túristaborgar. Boginn var reistur á árunum 1806–1836 til minnis um þá sem tóku þátt í frönsku byltingunni undir lok átjándu aldar og í Napaleón-stríðunum í upphafi þeirrar nítjándu. Hann er fimmtíu metra hár og af toppi hans er stórbrotið útsýni yfir borgina, akreinarnar sem umkringja hann og göturnar sem liggja frá honum – þeirra á meðal er Champs-Élysées – sbr. þessa mynd:
Eitt af því sem ég og Mundi gerðum þegar hann var í heimsókn hjá okkur Fríðu var einmitt að ganga upp 284 tröppur til að komast á topp bogans. Ég kvaddi Munda á mánudaginn var á Gare du Nord-lestarstöðinni en hann lenti hér í París síðasta föstudag. Við gerðum ótrúlega margt á fáum dögum þótt töluvert þurfi að bíða betri tíma. Við skoðuðum t.d. mannabein í Catacombs, heimsóttum turninn fræga, fórum á rokktónleika í Notre Dame, fórum í messu í Notre Dame, fórum í messu í Sacre Coeur, hjóluðum, löbbuðum, borðuðum crépe, drukkum vin rouge og margt fleira. Takk fyrir samveruna, minn kæri vinur. Vonandi munum við taka upp þráðinn síðar og eyða meiri tíma saman í þessari yndislegu borg.
Mundi var síðasti gestur okkar Fríðu fyrir jól en hér á Boulevard de Rochechouart hefur verið mikill og góður gestagangur síðan við fluttum í byrjun september. Margir hafa gist í stofunni/eldhúsinu/borðstofunni/sjónvarpsherberginu eða hvað skal kalla þetta rými, en við höfum líka hitt Íslendinga sem eiga hér leið hjá og eytt með þeim brot úr degi. Tveir þeirra eru Einar Aron, frændi Fríðu, og Steinunn sem við hittum við Eiffel daginn eftir að við lentum. Bergný, frænka Fríðu, kom svo við í stuttri Evrópureisu sinni. Hana hittum við hjá Notre Dame, gengum með henni um borgina og fórum út að borða á Café des 2 Moulins, sama veitingastað og sjálf Amélie starfaði á. Næstu ferðalanga hittum við í nákvæmlega níutíu mínútur, en það voru þau Ásdís Rósa og Halli sem gerðu lykkju á leið sína heim frá Túnis. Aftur var rendezvous við turninn háa.
Mikil eftirvænting ríkti eftir komu næsta gests sem er afar náinn vinur Fríðu en það er systir hennar, Særún Lea, sem dvaldi hjá okkur í heila viku. Ísabella og Arnar komu svo frá Utrecht í Hollandi og voru hjá okkur í fimm daga. Stellu, æskuvinkonu Fríðu, og mömmu hennar hittum við á Montmartre-hæðinni í eina kvöldstund og Smári og Linda voru hjá okkur yfir helgi stuttu síðar. Mamma mín kom laugardaginn sjöunda desember og fór aftur á afmælisdaginn minn, þann níunda. Nokkrum dögum seinna kom Mundi sem lokaði hringnum. Þá eru ótaldir þeir Íslendingar sem eru búsettir hér í París og við höfum hitt reglulega; Ragnheiður og Andri, Freyr og Anna og Kjartan og Ragna, en öll hafa þau gert dvöl okkar enn ánægjulegri. Og ekki má gleyma yndislegu vinum mínum í Lesstofunni sem ég hitti á bókamessunni í Frankfurt í byrjun október.
Takk þið öll fyrir að hafa gert þetta haust ógleymanlegt. Við hlökkum til að hitta ykkur hin sem ætlið að heimsækja borg ástarinnar um og eftir áramót. Joyeux Noël!
Haust í París (smellið til að skoða fleiri myndir):
fimmtudagur, 19. desember 2013
þriðjudagur, 19. nóvember 2013
Hellirinn
Hér í átjánda hverfi Parísarborgar er mikið líf. Á Montmartre-hæðinni trónir Sacre Cæur og í hlíðinni fyrir neðan kirkjuna eru ferðamenn sem – hvort sem þeir eru á leiðinni upp eða niður – reyna eftir fremsta megni að forðast ágenga menn frá Afríku sem selja vinabönd með orðunum hakuna matata. Og víða eru misfærir tónlistarmenn að hlýja fólki með ljúfum tónum og fótboltamenn að leika listir sínar.
Í hverfinu eru barir og brasserí í hverri byggingu. Flest kaffifhús eru með lifandi músík einhverja daga vikunnar og þá oftast djass. Rétt fyrir neðan Café des du Moulins, veitingastaðnum sem Amélie vann á, er tónleikastaðurnn Jazz Cave. Eins og nafnið gefur til kynna (hann heitir reyndar eitthvað annað en þessi orð eru mest áberandi) er salurinn – ef sal er hægt að kalla – neðanjarðar, og músíkin er djass. Fyrst fórum við Fríða þangað með Andra, Ragnheiði og Særúnu, sem þá var í heimsókn, og svo aftur þegar Arnar og Ísabella voru hjá okkur. Bæði skiptin voru unaðsleg en ólík. Það var rólegt í hellinum seinna kvöldið en í fyrra skiptið var húsfyllir (sirka 40 manns) og þangað voru mættir tónlistarmenn af öllum stærðum og gerðum.
Bandið sem byrjar leikinn samanstendur af píanóleikara, kontrabassaleikara og trommara sem er jafnframt hljómsveitarstjóri. Eftir hlé biður hann hvern þann sem þorir að koma upp á svið og plokka strengi, lemja húðir, blása í flautu eða hvað sem hann vill gera. Allir sem það gera eiga það sameiginlegt að vera framúrskarandi hljóðfæraleikarar og söngvarar sem gerir upplifunina í hellinum einstaka. Ég mæli eindregið með þessum litla stað fyrir alla þá sem heimsækja París, ekki síður en háa turninum við Signu. Við ætlum allavega að fara þangað aftur í kvöld!

Gamli flottur með saxafón mini edition
Í einu lagi urðu allir blástursleikarar vitlausir og hópuðu sig saman á sviðinu
fimmtudagur, 14. nóvember 2013
Kettir geta séð um sig sjálfir
Gamli maðurinn við brúna
eftir Ernest Hemingway
Við veginn sat gamall maður í rykugum fötum og með brún spangargleraugu. Nálægt honum var flotbrú sem vagnar, vörubílar, menn, konur og börn fóru yfir. Hermenn ýttu á teina þungu vagnanna sem asnar drógu upp brattan fljótsbakkann. Ryk þyrlaðist upp þegar vöruflutningabílarnir óku burt og bændurnir tóku þung skref í djúpri moldinni. En gamli maðurinn sat sem fastast. Hann var of þreyttur til að fara lengra.
Það var hlutverk mitt að fara yfir, kanna vígsvæðið handan brúarinnar og athuga framsókn óvinahersins. Þetta gerði ég og sneri svo aftur yfir brúna. Færri vagnar voru þá á hreyfingu og aðeins örfáir fótgangandi á ferli, en gamli maðurinn var þarna enn.
„Hvaðan kemurðu?“ spurði ég.
„Frá San Carlos,“ svaraði maðurinn brosandi.
Það var heimabær hans og það veitti honum því ánægju að minnast á hann.
„Ég var að sjá um dýr,“ útskýrði hann.
„Nú,“ sagði ég án þess að skilja nákvæmlega hvað hann átti við.
„Já,“ sagði maðurinn, „ég hélt sem sagt áfram að sjá um dýrin. Ég var sá síðasti sem yfirgaf San Carlos.“
Hann leit ekki út eins og fjárhirðir eða smali. Ég leit á rykugu, svörtu fötin hans, gráa, öskubarða andlitið og gleraugun og spurði: „Hvaða dýr voru það?“
„Alls konar dýr,“ svaraði hann og hristi höfuðið. „Ég varð að skilja þau eftir.“ Ég leit á brúna og landslag Ebro Delta votlendisins handan hennar sem minnti á Afríku, velti fyrir mér hversu langur tími myndi líða þar til maðurinn kæmi auga á óvininn og hlustaði eftir hljóðunum sem myndu berast frá fyrstu snertingunni, því dularfulla fyrirbæri; en gamli maðurinn sat þarna enn.
„Hvaða dýr voru það?“ spurði ég.
„Þetta voru þrjú dýr í heildina,“ útskýrði maðurinn, „tvær geitur og köttur. Svo voru fjögur pör af dúfum.“
„Og þú varðst að skilja þau eftir?“ sagði ég í spurnartón.
„Já. Út af stórskotabyssunum. Herrann sagði mér að fara út af stórskotabyssunum.“
„Og áttu enga fjölskyldu?“ spurði ég og horfði á árbakkann hinum megin þar sem síðustu vagnarnir fóru niður með hraði.
„Nei,“ svaraði maðurinn, „aðeins dýrin sem ég sagði þér frá. Kötturinn mun auðvitað spjara sig. Kettir geta séð um sig sjálfir. En ég get ekki ímyndað mér hvað mun verða um hin.“
„Hvar stendurðu í stjórnmálum?“ spurði ég.
„Hvergi,“ svaraði hann. „Ég er sjötíu og sex ára gamall. Ég hef ferðast tólf kílómetra og ég held ég geti ekki haldið áfram.“
„Hér er ekki gott að nema staðar,“ sagði ég. „Ef þú treystir þér geturðu farið lengra upp veginn; við afleggjarann til Tortosa finnurðu vörubíla.“
„Ég mun bíða um stund,“ sagði hann, „og svo mun ég fara. Hvert stefna vörubílarnir?“
„Í átt að Barcelona,“ svaraði ég.
„Ég þekki engan í þeirri átt,“ sagði hann, „en ég þakka þér kærlega fyrir. Takk.“
Hann horfði á mig með tómum og þreyttum augum og sagði svo – í augljósri þörf til að deila áhyggjum sínum: „Kötturinn mun spjara sig, það er ég viss um. Það er engin ástæða til að vera órólegur vegna hans. En hin, hvað heldur þú að verði um hin?“
„Þau munu örugglega komast lífs af.“
„Heldurðu það?“
„Af hverju ekki,“ sagði ég meðan ég horfði á árbakkann þar sem enga vagna var lengur að sjá.
„En hvað munu þau gera í stórskotahríðinni? Mér var nefnilega sagt að fara út af stórskotahríðinni.“
„Skildurðu dúfnabúrið eftir opið?“ spurði ég.
„Já.“
„Þá munu þær fljúga.“
„Já, þær munu áreiðanlega fljúga. En hin. Það er betra að hugsa ekki um hin,“ sagði hann.
„Ef þú hefur hvílt þig skaltu fara,“ brýndi ég fyrir honum. „Stattu nú upp og reyndu að ganga burt.“
„Þakka þér,“ sagði hann og stóð upp, vaggaði til hliðanna og settist aftur í rykið.
„Ég var að sjá um dýrin,“ sagði hann dauflega, án þess að beina orðum sínum sérstaklega til mín. „Ég var bara að sjá um dýrin.“
Það var ekkert hægt að gera fyrir manninn. Það var páskadagur og fasistarnir sóttu hart í átt að Ebrofljóti. Dagurinn var þungbúinn og grár. Það var lágskýjað og orustuvélarnar því ekki á lofti. Það, og sú staðreynd að kettir geta séð um sig sjálfir, var eina gæfan sem gamli maðurinn myndi nokkurn tíma njóta.
–––
The Old Man at the Bridge: © Ernest Hemingway 1938
Þýðing: © Þorsteinn Surmeli 2013
Athugasemd I: Sigurður A. Magnússon hefur áður þýtt þessa sögu. Þýðing hans birtist í safninu Snjórinn á Kilimanjaró og 23 aðrar sögur sem kom út árið 2004. Það var skemmtilegt að komast að því þegar ég var búinn með mína þýðingu. Það vantar íslensk bókasöfn í París!
Athugasemd II: Í sumum útgáfum heitir sagan Old Man at the Bridge, sem sagt án greinis. Mér finnst flottara að hafa greini.
miðvikudagur, 25. september 2013
Sundferð í París
Fyrr í þessari viku ákváðum við Andri Kristjánsson, sem er annar Íslendingur hér í París, að prófa eina af fjölmörgum sundlaugum borgarinnar. Ýmislegt þurfti þó að gera áður; Andra vantaði skýlu (ég var með stuttbuxurnar mínar sem hafa ósjaldan legið í Vesturbæjarlauginni) og við áttum hvorugir sundhettu - sem er víst skylda í stórborgarsundlaugum.
Við lögðum af stað í leiðangur að finna þessa tvo hluti, skýlu og hettu. Við gengum 18. hverfi þvert og endilangt og fórum inn í allar búðir sem litu út fyrir að geta mögulega selt þessar nauðsynjavörur. Í lítilli búð, sem seldi perur, pönnur, barnaföt, skrúfjárn, pasta og fleira gagnlegt, fundum við loks lítinn plastkassa sem í voru fjölmargar skýlur, flestar í XXXL en sumar í XXL. „Nei, hvað er þarna?“ sagði Andri spenntur, „sundhettur á snaga!“ Við gripum tvær hettur og héldum áfram leit okkar að skýlum.
Eftir tæplega tveggja tíma göngu ákváðum við að athuga hvort hugsanlega væru seldar skýlur í afgreiðslu laugarinnar. Maðurinn í afgreiðslunni var í góðu skapi: „Piscine? Gratuit!“ Og þarna voru skýlur! Þær voru í sjálfsala sem Íslendingar nota undir súkkulaði og snakk en Frakkar skýlur og hettur. Á þessum tíma vorum við Andri orðnir mjög spenntir, röltum brosandi niður, niður, niður þar til sundlaugin birtist loks; 25m laug með fimm brautum. Þetta var augljóslega háannatími því á hverri braut voru þrír til fjórir sundgarpar. Við létum það ekki stoppa okkur enda komnir alla þessa leið. Við skiptum um föt í klefa sem var fyrir bæði kyn, sturtuðum okkur með körlum og konum (í skýlu, auðvitað) og röltum í átt að lauginni, báðir með bláa sundhettu á hausnum, ég með ljósbláa en Andri kóngabláa.
Þegar ég gerði mig líklegan til að stinga mér til sunds heyri ég æpt: „Monsieur! Monsieur!“ Ég fann vel fyrir þröngu hettunni á hausnum en ég leit snögglega niður til að ganga úr skugga um að ég væri alveg örugglega í buxunum. Maðurinn benti engu að síður á mittið á mér og röflaði eitthvað á frönsku. Þegar hann áttaði sig á því að ég skyldi ekki neitt náði hann í konu sem sagði við mig, blíðlega: „It is very prohibited to wear shorts.“ Frábært. Ég var sem sagt rekinn uppúr áður en ég fór ofan í.

fimmtudagur, 1. ágúst 2013
Stykkishólmur 3/44
Klukkan fjögur að morgni föstudagsins 14. júní 2013 lögðum við Fríða af stað til Keflavíkur. Stefnan var sett á Leifsstöð þar sem við tókum á móti góðu fólki; pabba, fyrrverandi tengdaforeldrum hans og Zehru systur minni. Þetta góða fólk hafði flogið yfir Atlantshafið af einni ástæðu: að vera við giftingu okkar Fríðu á laugardeginum. Við tókum bíl á leigu, settum í bakkgír, svo framgír og brunuðum í átt að Stykkishólmi.
Hólmurinn var gullfallegur að vanda en þónokkur þoka gaf vísbendingu um að veðrið yrði hugsanlega ekki frábært yfir helgina. Þegar við Fríða höfðum skilað góða fólkinu í íbúð sem við höfðum leigt í hólminum kíktum við í salinn á Saurum sem við höfðum líka tekið á leigu. Þegar við gengum inn leit salurinn einhvern veginn svona út:
En þegar við ásamt yndislegu fólki höfðum tekið til hendinni á tíma sem samsvarar heilum vinnudegi leit hann sirka svona út:
Á meðan höfðu einhverjir gestir komið sér fyrir á tjaldstæði fyrir utan félagsheimilið og þar var partí um kvöldið. Lengi lifi kúlutjaldið!
Pabbi grillaði svo ofan í okkur íslenskt/tyrkneskt lamb svo við gætum farið södd og sæl að sofa í svítunni okkar á gistiheimilinu Sjávarborg. Kojan við hlið rúmsins stóð auð meðan við horfðum yfir bryggjuna og hafið.
Um morguninn tók ég á móti fyrrverandi konu pabba og Yasemin systur minni, fór í sund og klippingu
borðaði pulsu og setti á mig slaufu áður en við fórum um borð í Særúnu. Þrír prúðbúnir gestir ætluðu í brúðkaup í Baldri sem bakkaði þó aftur að bryggju og skilaði þremenningunum á þurrt land áður en hann sigldi milli eyjanna óteljandi, hafði viðkomu í Flatey og lagðist að bryggju í Brjánslæk.
Á Breiðafirðinum var svo brúðkaup sem afi minn og nafni stýrði af stakri prýði enda staddur á heimavelli. Veðrið var yndislegt eins og fólkið sem ég horfði á frá þessu sjónarhorni:
en það á okkur frá þessu:
Svo var matur og dansiball þar sem hljómsveitin StoneFree spilaði undir dansi. Heimalningur frá Saurum tók þátt en kannski var hann að leita að systkinum sínum sem við höfðum nýlokið við að kyngja:
Hljómsveitin spilaði meira að segja undir dansi hringinn í kringum húsið:
Daginn eftir var boðið upp á egg og beikon og afganga af lömbunum átta. Á þriðjudeginum fórum við svo til sýslumanns til að ganga frá öllum pappírum og segja já aftur og kyssast aftur:
Um kvöldið var svo partí á Faktorý
og á miðvikudeginum borðuðum við fyrstu hjónamáltíðina saman:
Fyrir hönd okkar Fríðu
vil ég þakka öllum þeim sem gerðu þessa helgi og viku - og í raun síðustu mánuði - ógleymanlega. Okkur mun ekki endast ævin til að borga ykkur til baka allt það sem þið hafið gert fyrir okkur. Ég vil líka þakka öllum fyrir yndislegar gjafir sem allar (án gríns - hver ein og einasta) komu eða munu koma að góðum notum!
TAKK TAKK TAKK!
Fleiri myndir (smellið til að skoða):

mánudagur, 15. apríl 2013
Mánudagsormur V
Ég er frekar stoltur af þessum ormi sem var tekinn upp á Kalda bar síðastliðið laugardagskvöld þegar árshátíð Lesstofunnar var haldin:
http://tettaerlifid.blogspot.com/2013/04/manudagsormur-5-ormurinn-i-dag-er-allt.html
http://tettaerlifid.blogspot.com/2013/04/manudagsormur-5-ormurinn-i-dag-er-allt.html
The Dykes
Einu sinni var ég í pönkhljómsveit sem hét The Dykes. Fyrstu og einu tónleikar sveitarinnar fóru fram í samkomuhúsinu í Garðinum haustið 2007. Þetta var jafnframt eina æfing The Dykes og eins og sannri pönkhljómsveit sæmir voru öll lögin samin á sviði. Hvorki hljómsveitarmeðlimir né áhorfendur muna hvaða lög voru spiluð eða hvaða nöfn þau báru. Þessi goðsagnarkennda hljómsveit er því aðeins varðveitt á tveimur ljósmyndum frá fyrrnefndum og einu tónleikum hennar:
Einhverjir hafa haldið því fram að lög The Dykes líkist þessu hér (og stemningin á tónleikunum sömuleiðis):
Einhverjir hafa haldið því fram að lög The Dykes líkist þessu hér (og stemningin á tónleikunum sömuleiðis):
þriðjudagur, 9. apríl 2013
Stykkishólmur 2/44
Á föstudaginn lögðum við Fríða, ásamt Önnu Alberts og Silju (hvers dóttir?), af stað í átt að tilvonandi heimabæ okkar Fríðu - og kannski Önnu og Silju, ég veit það ekki -, Stykkishólm. Við ákváðum að fara aðra leið að hólminum; keyrðum hringveginn í norðaustur, beygðum inn á veg 60 og þaðan 54. Örlögin hafa augljóslega gripið í taumana því á veginum voru hátt á annan tug íslenskra hesta sem virtust hlaupa stefnulaust í suðurátt (sem hljómar skringilega en þannig var þetta). Silja greip í símann, hringdi í Neyðarlínuna (eins og gert er þegar maður sér hesta) og tilkynnti að hópur íslenskra hesta væri laus í íslenskri náttúru, rétt vestan við bæinn Bæ.
Á Hólminum borðuðum við hamborgara og drukkum allskonar. Um ellefu-leytið brá Fríða sér niður á neðri hæð veitingastaðarins og vann og skilaði verkefni eftir að hafa drukkið stærsta rauðvínsglas sem allir á staðnum höfðu séð. Vel gert Fríða, virkilega vel gert.
Svo var auðvitað eftirpartí á hótelherbergi einhvers þar sem menn og konur (þó aðallega Bjössi) vöfðu sig inn í gluggatjöld (Bjössi var reyndar sá eini sem gerði það):
Á laugardeginum fengum við leiðsögn um bæinn sem endaði á Vatnasafninu. Sýningin þar var áhugaverðara en fólk hélt; flestir tóku t.d. myndir í gegnum vatnssúlurnar eftir færeyska staupið og súra hvalinn hans Jógvans sem næstum allir héldu í líkamnum en alls ekki allir.
Svo var drukkið og dansað. Ég hef aldrei tekið orminn jafn oft á svo stuttum tíma enda þótti ég frekar glæsilegur og karlmannlegur í árshátíðarmyndbandinu
og var því ítrekað beðinn um að fleygja mér á gólfið:
Svo keyrðum við heim, fyrst í svona veðri
og svo svona:
Við eyddum svo sunnudeginum á Kaffi Ást á Akranesi þar sem ríkti þungbær sorg. Að öðru leyti var helgin frábær eða frábær.
að skoða olíu
Á Hólminum borðuðum við hamborgara og drukkum allskonar. Um ellefu-leytið brá Fríða sér niður á neðri hæð veitingastaðarins og vann og skilaði verkefni eftir að hafa drukkið stærsta rauðvínsglas sem allir á staðnum höfðu séð. Vel gert Fríða, virkilega vel gert.
Svo var auðvitað eftirpartí á hótelherbergi einhvers þar sem menn og konur (þó aðallega Bjössi) vöfðu sig inn í gluggatjöld (Bjössi var reyndar sá eini sem gerði það):
Á laugardeginum fengum við leiðsögn um bæinn sem endaði á Vatnasafninu. Sýningin þar var áhugaverðara en fólk hélt; flestir tóku t.d. myndir í gegnum vatnssúlurnar eftir færeyska staupið og súra hvalinn hans Jógvans sem næstum allir héldu í líkamnum en alls ekki allir.
og var því ítrekað beðinn um að fleygja mér á gólfið:
Svo keyrðum við heim, fyrst í svona veðri
og svo svona:
Við eyddum svo sunnudeginum á Kaffi Ást á Akranesi þar sem ríkti þungbær sorg. Að öðru leyti var helgin frábær eða frábær.
miðvikudagur, 3. apríl 2013
mánudagur, 1. apríl 2013
Keflavík
Það er ekki hægt að fá sér kaffi út í bæ fyrir hádegi í Keflavík. Bókasafnið býður að vísu upp á frítt, uppáhellt kaffi. En það er ekki það sem ég og æskuvinur minn vorum að leita að þegar við vildum spjalla um gömlu dagana í bænum, ástina, páskana og Hemingway - fyrir hádegi.
Hér er gömul mynd af mér:
Hér er gömul mynd af mér:
föstudagur, 22. mars 2013
Stykkishólmur 1/44
Á Íslandi eru margir fallegir bæir en fáir jafn glæsilegir og fríðir og Stykkishólmur. Við Fríða gerðum okkur ferð þangað um síðustu helgi ásamt mömmu og stjúpa til að athuga raka moldarinnar og annað fyrir brúðkaupið í sumar.
Mamma kom auðvitað með heilsunesti (samt var það hún sem stakk upp á því að við fengjum okkur bensínstöðvarpulsu)
Við fórum niður á bryggju að leita að bátnum sem við höfum tekið á leigu en hann var ekki að finna. Við, niðurlút og í spreng, sníktum því kaffi og með því í gullfallegu húsi í bænum og hvað haldiði að við höfum séð út um eldhúsgluggann? Auðvitað var það Særún (bátinn þ.e.a.s., ekki systur brúðarinnar - eins og sést kannski betur á næstu mynd):
Partísalurinn Skjöldur á Saurum þar sem Eminem og Iron Maiden munu trylla lýðinn
fimmtudagur, 21. mars 2013
Merkilegir og ómerkilegir staðir á Íslandi II - HÖFÐI
Munið eftir stefnuyfirlýsingunni í fyrstu færslu þessa flokks: Fyrirmyndin er vefsíðan Hugi.is en þar skrifa meðlimir um allt og ekkert; margar færslur hefjast til að mynda á orðum eins og: "Sælir strákar. Ég var að skoða Sturlungu og ætla að skrifa nokkur orð um hana..." Fyrirmyndarblogg. Vonandi verður þessi síða jafn handahófskennd og einlæg.
Á
túninu við Höfða stendur listaverkið Öndvegissúlur eftir Sigurjón Ólafsson (sjá
Merkilegir og ómerkilegir staðir á Íslandi I - HLEMMUR). Súlurnar tvær minna Á leiðtogana tvo en flestir tengja þær
þó við öndvegissúlur fyrsta landnámsmanns Íslands, Ingólf Arnarsonar, sem ráku
á land þar við ströndina.
Franski konsúllinn Jean-Paul Brillouin reisti Höfða árið 1909 og bjó þar í stuttan tíma. Árið 1914 keypti Einar Benediktsson skáld húsið og bjó þar í nokkur ár. Eftir það voru ýmsir eigendur: Títanfélagið átti það um skeið, félagið sem Einar stofnaði og átti að annast virkjanadrauma hans, svo Matthías Einarsson læknir, faðir Louisa Matthíasdóttir listmálara sem ólst þar upp.
Rétt fyrir seinni heimsstyrjöldina keyptu Bretar húsið og gerðu að sendiráðsbústað. Einn sendiráðherrann varð var við svo mikinn draugagang að hann fór fram á að húsið yrði selt og það varð. Reykjavíkurborg keypti húsið á sjötta áratugnum en þá var það komið í mikla niðurníðslu og höfðust þar jafnvel rónar við (sjá Merkilegir og ómerkilegir staðir á Íslandi I - HLEMMUR). Þá var ákveðið að gera það upp og gera að móttökuhúsi fyrir Reykjavíkurborg.
Mönnum greinir á um það hvort það hafi verið Ronald Reagan eða Gorbatsjovs sem átti hugmyndina að vali Reykjavíkur sem fundarstaðar í október 1986. Hvað sem því líður var fundurinn einhver merkasti leiðtogafundur tuttugust aldarinnar og hann átti stóran þátt í falli heimsveldis hins illa, hruni kommúnismans í Evrópu og endalokum kalda stríðsins. Fjölmiðlar um víða veröld eru sammála um að fundurinn í Höfða hafi skipt sköpum í stjórnmálasögu síðustu aldar. Fundurinn kom Íslandi varanlega á heimskortið og hann markaði einnig upphaf góðrar og langvarandi vináttu milli leiðtoganna tveggja.

Fimm árum síðar, eða í ágúst 1991,
komu utanríkisráðherrar Eystrasaltsríkjanna til fundar í Höfða, en þá var
sjálfstæðisbarátta ríkjanna á lokastigi. Á fundi þeirra viðurkenndu Íslendingar
sjálfstæði Eyrstrarsaltsríkjanna, fyrstir allra þjóða.
föstudagur, 15. mars 2013
Af konsertum
Eldar hituðu upp fyrir Ylju á Rósenberg fyrir tveimur vikum. Frábær konsert.
Tómas R. Einarsson er það líka, þ.e. frábær, bæði sem músíkant og náungi. Við Fríða kíktum á latin jazz bandið hans á Kaffi Haítí síðasta föstudag. Haldiði að ég hafi bara ekki gengið út sem töluvert betri drengur eftir tónleikana. Arnar og Ísabella
voru með okkur og Arnar sannfærði Tómas um að spila á sunnu-jazzinum á Faktorý, sem og hann gerði. Og að sjálfsögðu mættum við; héðan í frá munum við fylgja honum um hvert fótmál.
Á laugardaginn kíkti ég hins vegar á stúdíó-tónleika í boði Klassart. Þá mættu Fríða og Smári í Geimstein og tóku All I need með Air. Alveg hreint stórfínt! Flutningurinn var svo sýndur í keflvíska Landanum, Suðurnesjamagasíni, ásamt viðtali við systkinin.
Eldar
Ylja
Tómas R. Einarsson er það líka, þ.e. frábær, bæði sem músíkant og náungi. Við Fríða kíktum á latin jazz bandið hans á Kaffi Haítí síðasta föstudag. Haldiði að ég hafi bara ekki gengið út sem töluvert betri drengur eftir tónleikana. Arnar og Ísabella
voru með okkur og Arnar sannfærði Tómas um að spila á sunnu-jazzinum á Faktorý, sem og hann gerði. Og að sjálfsögðu mættum við; héðan í frá munum við fylgja honum um hvert fótmál.
Latin Jazzzzzz
Nafni minn og snillingurinn Steini Sax í stuði á sunnu-jazzinum
þriðjudagur, 26. febrúar 2013
laugardagur, 23. febrúar 2013
Fríða og Klassart í Pálsson og litli
Það skiptir ekki máli hvenær unnusta mín opnar munninn, hún hljómar alltaf unaðslega. Hún hljómar sérstaklega vel í útvarpi, og hvað þá eftir tíu daga veikindi. Það er fátt betra en að byrja laugardaga á ferð í Útvarpshúsið.
Systkinin spiluðu Pays du Rêve eftir Fridu og lag sem hefur ekki enn fengið titil eftir Klassart.
Og svo blúsuðu þau sig út úr Útvarpshúsinu:
Hér er hægt að hlusta á viðtalið og lögin:
Systkinin spiluðu Pays du Rêve eftir Fridu og lag sem hefur ekki enn fengið titil eftir Klassart.
Og svo blúsuðu þau sig út úr Útvarpshúsinu:
Hér er hægt að hlusta á viðtalið og lögin:
Simmi
Ég fór á Edduna í fyrsta skipti um síðustu helgi og sat við hliðina á Simma í Simma og Jóa og frú. Hann hló manna mest þegar Steindi kyssti alla á sviðinu, svo mikið að það fór um frúnna - og mig líka reyndar - sem reyndi að róa sinn mann niður.
Ég fór í Hörpu með þessu yndislega og rauða fólki. Svarfdælingurinn var tilnefndur en vann ekki enda eru þetta bara asnalega verðlaun.
Ég fór í Hörpu með þessu yndislega og rauða fólki. Svarfdælingurinn var tilnefndur en vann ekki enda eru þetta bara asnalega verðlaun.
sunnudagur, 17. febrúar 2013
Düğün
Ástin í lífi mínu og tilvonandi eiginkona mín tók bónorði mínu á föstudaginn. Á baugfingri ber hún hring sem pabbi gaf mömmu fyrir tæpum þremur áratugum. Hringurinn er frá Tyrklandi og kemur sennilega frá ömmu minni (þetta hlýtur að rifjast upp fyrir pabba).
mánudagur, 11. febrúar 2013
Pays de Rêve
Sumum finnst gott að nýta helgina til að hvíla lúin bein og safna kröftum fyrir komandi vinnuviku. Jújú, það er fínt. En það er líka fínt að taka upp tónlistarmyndband frá morgni til kvölds og bruna svo beint í útskriftarveislu aldarinnar. Myndbandið er við lag Fríðu, Pays de Rêve, sem var tekið upp í Stúdíó Ógæfu í þarsíðustu viku. Myndbandið verður tilbúið í þessari viku og er stefnt á frumsýningu á lagi og vídjói næsta föstudag, 15. feb.
Særún tók myndbandið upp og ég gerði eitthvað, t.d. að raða upp borðum. Hvorugt okkar hefur gert svona áður (ég hef að vísu komið við sögu í íslenskum og erlendum kvikmyndum, en þá hinum megin við linsuna; það er efni í aðra færslu) og því var öll uppsetning frekar amatör; mónitorinn er á neðsta borðinu, myndavélin á efsta:
Þar sem við vorum með myndvarpa í litlu 53m2 íbúðinni okkar, og öll húsgögn á röngum stað, nýttum við tækifærið og sendum pabba litla afmæliskveðju.
Og hér er útskriftarparið fína (ég veit ekki afhverju þau völdu okkar gjöf fyrir myndatökuna):
Ég tók orminn í veislunni og Linda Sæ tók hann upp. Í kjölfarið sömdum við um að einu sinni í viku myndi hún pósta ormamyndbandi af mér sem verður aldrei tekið á sama stað. Skrifað var undir fleiri bloggsamninga þetta kvöld; bloggið hefur risið upp úr ösku sinni!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)