Fyrr í þessari viku ákváðum við Andri Kristjánsson, sem er annar Íslendingur hér í París, að prófa eina af fjölmörgum sundlaugum borgarinnar. Ýmislegt þurfti þó að gera áður; Andra vantaði skýlu (ég var með stuttbuxurnar mínar sem hafa ósjaldan legið í Vesturbæjarlauginni) og við áttum hvorugir sundhettu - sem er víst skylda í stórborgarsundlaugum.
Við lögðum af stað í leiðangur að finna þessa tvo hluti, skýlu og hettu. Við gengum 18. hverfi þvert og endilangt og fórum inn í allar búðir sem litu út fyrir að geta mögulega selt þessar nauðsynjavörur. Í lítilli búð, sem seldi perur, pönnur, barnaföt, skrúfjárn, pasta og fleira gagnlegt, fundum við loks lítinn plastkassa sem í voru fjölmargar skýlur, flestar í XXXL en sumar í XXL. „Nei, hvað er þarna?“ sagði Andri spenntur, „sundhettur á snaga!“ Við gripum tvær hettur og héldum áfram leit okkar að skýlum.
Eftir tæplega tveggja tíma göngu ákváðum við að athuga hvort hugsanlega væru seldar skýlur í afgreiðslu laugarinnar. Maðurinn í afgreiðslunni var í góðu skapi: „Piscine? Gratuit!“ Og þarna voru skýlur! Þær voru í sjálfsala sem Íslendingar nota undir súkkulaði og snakk en Frakkar skýlur og hettur. Á þessum tíma vorum við Andri orðnir mjög spenntir, röltum brosandi niður, niður, niður þar til sundlaugin birtist loks; 25m laug með fimm brautum. Þetta var augljóslega háannatími því á hverri braut voru þrír til fjórir sundgarpar. Við létum það ekki stoppa okkur enda komnir alla þessa leið. Við skiptum um föt í klefa sem var fyrir bæði kyn, sturtuðum okkur með körlum og konum (í skýlu, auðvitað) og röltum í átt að lauginni, báðir með bláa sundhettu á hausnum, ég með ljósbláa en Andri kóngabláa.
Þegar ég gerði mig líklegan til að stinga mér til sunds heyri ég æpt: „Monsieur! Monsieur!“ Ég fann vel fyrir þröngu hettunni á hausnum en ég leit snögglega niður til að ganga úr skugga um að ég væri alveg örugglega í buxunum. Maðurinn benti engu að síður á mittið á mér og röflaði eitthvað á frönsku. Þegar hann áttaði sig á því að ég skyldi ekki neitt náði hann í konu sem sagði við mig, blíðlega: „It is very prohibited to wear shorts.“ Frábært. Ég var sem sagt rekinn uppúr áður en ég fór ofan í.