Sigurboginn á Charles de Gaulle-torgi í París er í flokki með herra Eiffel, fröken Louvre, dömunni Notre Dame, hinni heilögu Sacre Coeur og fleiri þekktum minnismerkjum þessarar vinsælu túristaborgar. Boginn var reistur á árunum 1806–1836 til minnis um þá sem tóku þátt í frönsku byltingunni undir lok átjándu aldar og í Napaleón-stríðunum í upphafi þeirrar nítjándu. Hann er fimmtíu metra hár og af toppi hans er stórbrotið útsýni yfir borgina, akreinarnar sem umkringja hann og göturnar sem liggja frá honum – þeirra á meðal er Champs-Élysées – sbr. þessa mynd:
Eitt af því sem ég og Mundi gerðum þegar hann var í heimsókn hjá okkur Fríðu var einmitt að ganga upp 284 tröppur til að komast á topp bogans. Ég kvaddi Munda á mánudaginn var á Gare du Nord-lestarstöðinni en hann lenti hér í París síðasta föstudag. Við gerðum ótrúlega margt á fáum dögum þótt töluvert þurfi að bíða betri tíma. Við skoðuðum t.d. mannabein í Catacombs, heimsóttum turninn fræga, fórum á rokktónleika í Notre Dame, fórum í messu í Notre Dame, fórum í messu í Sacre Coeur, hjóluðum, löbbuðum, borðuðum crépe, drukkum vin rouge og margt fleira. Takk fyrir samveruna, minn kæri vinur. Vonandi munum við taka upp þráðinn síðar og eyða meiri tíma saman í þessari yndislegu borg.
Mundi var síðasti gestur okkar Fríðu fyrir jól en hér á Boulevard de Rochechouart hefur verið mikill og góður gestagangur síðan við fluttum í byrjun september. Margir hafa gist í stofunni/eldhúsinu/borðstofunni/sjónvarpsherberginu eða hvað skal kalla þetta rými, en við höfum líka hitt Íslendinga sem eiga hér leið hjá og eytt með þeim brot úr degi. Tveir þeirra eru Einar Aron, frændi Fríðu, og Steinunn sem við hittum við Eiffel daginn eftir að við lentum. Bergný, frænka Fríðu, kom svo við í stuttri Evrópureisu sinni. Hana hittum við hjá Notre Dame, gengum með henni um borgina og fórum út að borða á Café des 2 Moulins, sama veitingastað og sjálf Amélie starfaði á. Næstu ferðalanga hittum við í nákvæmlega níutíu mínútur, en það voru þau Ásdís Rósa og Halli sem gerðu lykkju á leið sína heim frá Túnis. Aftur var rendezvous við turninn háa.
Mikil eftirvænting ríkti eftir komu næsta gests sem er afar náinn vinur Fríðu en það er systir hennar, Særún Lea, sem dvaldi hjá okkur í heila viku. Ísabella og Arnar komu svo frá Utrecht í Hollandi og voru hjá okkur í fimm daga. Stellu, æskuvinkonu Fríðu, og mömmu hennar hittum við á Montmartre-hæðinni í eina kvöldstund og Smári og Linda voru hjá okkur yfir helgi stuttu síðar. Mamma mín kom laugardaginn sjöunda desember og fór aftur á afmælisdaginn minn, þann níunda. Nokkrum dögum seinna kom Mundi sem lokaði hringnum. Þá eru ótaldir þeir Íslendingar sem eru búsettir hér í París og við höfum hitt reglulega; Ragnheiður og Andri, Freyr og Anna og Kjartan og Ragna, en öll hafa þau gert dvöl okkar enn ánægjulegri. Og ekki má gleyma yndislegu vinum mínum í Lesstofunni sem ég hitti á bókamessunni í Frankfurt í byrjun október.
Takk þið öll fyrir að hafa gert þetta haust ógleymanlegt. Við hlökkum til að hitta ykkur hin sem ætlið að heimsækja borg ástarinnar um og eftir áramót. Joyeux Noël!
Haust í París (smellið til að skoða fleiri myndir):

