Einhvern tíma á milli tvítugs og þrítugs keypti mamma mín filmuvél, Canon A-1. Sala á þessum vélum hófst árið 1978 en framleiðslu var hætt árið sem ég fæddist, 1985. Vélin er nokkurs konar flaggskip A-línu Canon en hún hefur alla þá sömu eiginleika og stillingar og DSLR-vélar nútímans og maður finnur í raun ekki fyrir miklum mun ef maður er vanur Canon. Og þessi vél er meira að segja með prógram-stillingu (fyrsta SLR með svoleiðis) ef maður kýs það fram yfir manual. Helsti munurinn er kannski sá að ekkert plast er notað í hönnun vélarinnar eins og gert er í dag. Vélin er algjört bjútí:

Allavega, ég prófaði vélina hennar mömmu í síðustu viku. Ég fór til vina minna í Camara á Rue de Rochechouart, lét hreinsa hana aðeins, keypti batterí og auðvitað filmur. Svo fór ég í göngutúr vopnaður 50mm linsu. Þetta var vafalaust skemmtilegasti ljósmyndagöngutúrinn hingað til en ég hef aldrei áður fest myndir á filmu. Filmuvélin setur ljósmyndarann í allt aðrar stellingar; hann þarf að huga vel að allri birtu og, þar sem filmur eru ekki ódýrar, velja réttu augnablikin og viðföngin. Filman geymir aðeins 24 myndir og það er auðvitað ekki hægt að kíkja aftan á vélina eftir hverja mynd til að athuga hvort hún hafi heppnast eða ekki. Allt þarf að fara fram með því að horfa í gegnum linsuna.
Eftir um tveggja tíma göngutúr kláraðist filman (sem sumum finnst kannski langur tími fyrir aðeins 24 myndir en þannig er stemningin; maður tímir ekki að taka myndir og vona að þær heppnist). Ég fór með filmuna aftur til ljúfmennanna í Camara sem sögðu mér að koma aftur eftir viku sem er á morgun. Í morgun var ég of spenntur og fór til þeirra og sótti myndirnar sem biðu mín á geisladiski. Ég er nokkuð sáttur með 16 af þeim 24 myndum sem voru framkallaður. Þetta eru þær:
Þessi vél er um þrjátíu ára gömul en skilar ekki síðra verki en stafrænar vélar nútímans. Þetta var allavega ekki í síðasta skiptið sem ég mun hlaupa í Camara til að sækja myndir úr framköllun.