mánudagur, 26. maí 2014

Afmæli

Í síðustu viku átti Oddlaug afmæli. Að því tilefni ákvað Nicos, maðurinn hennar, að koma henni á óvart með því að halda partí í íbúð vinar síns, rétt fyrir utan París. Hann plataði afmælisbarnið til að koma og voila! Þar biðu allir! Hér eru nokkrar myndir:


Bjarni og Daði í góðum gír.




Partíið byrjaði áður en afmælisbarnið mætti á svæðið.


Og svo mætti hún og varð frekar hissa.






Flóki reynir að fara með regnhlíf gegnum dyr.









Freyr í fjötrum.


Kakan.


Flóki var í stuði.



fimmtudagur, 24. apríl 2014

Páskar í París

Mamma, Gunnar, amma og afi komu í heimsókn til okkar Fríðu yfir páskana. Þetta voru vafalaust skemmtulegustu páskar sem ég man eftir enda skemmtilegasta fólk sem ég þekki. Það var sérstaklega gaman að ganga um stræti Parísar með ömmu sem hefur dreymt um að heimsækja borgina síðan hún var ung kona, enda á hún rætur hér eins og ég útskýri betur í texta við myndirnar.

Takk fyrir samveruna, elsku fjölskylda!


Myndir:


þriðjudagur, 15. apríl 2014

Svarthvítt vor í París IV

Einhvern tíma á milli tvítugs og þrítugs keypti mamma mín filmuvél, Canon A-1. Sala á þessum vélum hófst árið 1978 en framleiðslu var hætt árið sem ég fæddist, 1985. Vélin er nokkurs konar flaggskip A-línu Canon en hún hefur alla þá sömu eiginleika og stillingar og DSLR-vélar nútímans og maður finnur í raun ekki fyrir miklum mun ef maður er vanur Canon. Og þessi vél er meira að segja með prógram-stillingu (fyrsta SLR með svoleiðis) ef maður kýs það fram yfir manual. Helsti munurinn er kannski sá að ekkert plast er notað í hönnun vélarinnar eins og gert er í dag. Vélin er algjört bjútí:


Allavega, ég prófaði vélina hennar mömmu í síðustu viku. Ég fór til vina minna í Camara á Rue de Rochechouart, lét hreinsa hana aðeins, keypti batterí og auðvitað filmur. Svo fór ég í göngutúr vopnaður 50mm linsu. Þetta var vafalaust skemmtilegasti ljósmyndagöngutúrinn hingað til en ég hef aldrei áður fest myndir á filmu. Filmuvélin setur ljósmyndarann í allt aðrar stellingar; hann þarf að huga vel að allri birtu og, þar sem filmur eru ekki ódýrar, velja réttu augnablikin og viðföngin. Filman geymir aðeins 24 myndir og það er auðvitað ekki hægt að kíkja aftan á vélina eftir hverja mynd til að athuga hvort hún hafi heppnast eða ekki. Allt þarf að fara fram með því að horfa í gegnum linsuna.

Eftir um tveggja tíma göngutúr kláraðist filman (sem sumum finnst kannski langur tími fyrir aðeins 24 myndir en þannig er stemningin; maður tímir ekki að taka myndir og vona að þær heppnist). Ég fór með filmuna aftur til ljúfmennanna í Camara sem sögðu mér að koma aftur eftir viku sem er á morgun. Í morgun var ég of spenntur og fór til þeirra og sótti myndirnar sem biðu mín á geisladiski. Ég er nokkuð sáttur með 16 af þeim 24 myndum sem voru framkallaður. Þetta eru þær:

















Þessi vél er um þrjátíu ára gömul en skilar ekki síðra verki en stafrænar vélar nútímans. Þetta var allavega ekki í síðasta skiptið sem ég mun hlaupa í Camara til að sækja myndir úr framköllun.

mánudagur, 7. apríl 2014

Svarthvítt vor í París III

Það er ekki leiðinlegt að ganga um stræti Montmartre þessa dagana. Túristarnir ráfa um stefnulausir – en þó ástfangnir – og taka myndir í allar áttir, og það sama hef ég reyndar líka verið að gera. Fólk virðist sérstaklega ástfangið í brekkunni fyrir neðan Sacre Coeur:



Fólk var reyndar líka mjög skotið í Parc de Bellevilla þegar við Fríða drukkum þar síðdegisbjór með Kjartani og Rögnu í fyrradag. Belleville is the new Montmartre, sagði einhver og glotti:


Þessi er þó ekki sammála því og stendur enn vaktina í Montmartre:


Og listamennirnar halda áfram að teikna túrista. Þessi hefur sennilega orðið hissa þegar hann fékk myndina í hendurnar:


Ungir hafa líka verið að sýna listir sínar í sólinni síðustu daga:


Fríða horfir í sólina:


Fríða flissar í tómum metró:


Þó ekki af þessum vinkonum sem vöfruðu um internetið á Amélie-lestarstöðinni:


fimmtudagur, 3. apríl 2014

Óvænt heimsókn frá Dubai

Seint í gærkvöldi sendi Ingibjörg okkur Fríðu póst þar sem hún spurði hvort við vildum ekki drekka með henni drykk eða tvo í dag þar sem hún átti flug fram og til baka frá Dubai. Þegar við höfðum ákveðið stað og stund tók hún þá skyndiákvörðun að kaupa miða handa Ragga – meðan hann var úti að leika sér í fótbolta – sem hann fékk ekki að vita fyrr en eldsnemma í morgun/nótt. Það fyrsta sem þurfti að gera var, auðvitað, að uppfæra upplýsingatöfluna:


Þetta voru miklir fagnaðarfundir enda hittumst við síðast í ágúst í fyrra.


 Sjáið þetta fallega fólk! Það átti ekkert minna skilið en ískalt kampavín áður en við fórum út í veðurblíðuna. Við gengum upp og niður og upp Montmartre þar sem allt iðaði af lífi,


fengum okkur svalandi hanastél á Café des deux Moulins


og horfðum svo á PSG fara illa með Chelsea á írskum bar á miðri hæðinni.

Kæru vinir, takk fyrir yndislega samveru í þennan stutta tíma. Vonandi hittumst við aftur sem fyrst!