fimmtudagur, 19. júní 2014

Uppskeruhátíð Klassart

Þriðja plata Klassart kom út fyrir skömmu og í kvöld mun hljómsveitin fagna útgáfunni með tónleikum í Kaldalónssal Hörpu. Hljómsveitin hefur síðustu daga æft af fullum krafti fyrir tónleikana en undirbúningurinn nær auðvitað mun lengra aftur. Krakkarnir hafa unnið að plötunni síðustu tvö ár og eru tónleikarnir í kvöld því mikil uppskeruhátíð þar sem öll lögin á plötunni verða spiluð og sögurnar sem þau hafa að geyma sagðar.

Vonandi munu flest ykkar mæta og fagna með systkinunum Fríðu og Smára sem eiga öll lög og alla texta á plötunni. Þau eru þó ekki ein í bandinu. Neineinei. Hljómsveitin telur níu manns og munu allir standa á sviðinu í kvöld og öllum þeim sviðum sem hljómsveitin mun stíga á næstu misserin, en á mánudaginn hefst tónleikaferð um landið. Hin undurfagra Soffía Björg og hljómsveit hennar Soffía Björg Band mun hita upp en ég mæli alls ekki með því að fólk missi af þeirri dásemd.

Hér eru nokkrar myndir frá æfingum síðustu daga sem hafa farið fram í Geimsteini í Keflavík. Sjáumst í Hörpu í kvöld!






















föstudagur, 13. júní 2014

Brother Grass á Rósenberg

Krakkarnir í Brother Grass héldu frábæra tónleika á Rósenberg í gær. Hér eru nokkrar myndir:

Hildur prófar nikkuna

Soffía pússar gítarinn

Hildur fer yfir gögnin

Berglind prófar balann


Örn tékkar sándið

Og það var gott

Gestir komnir í hús, þrátt fyrir HM




Hljómsveitin flutti lag eftir afa Söndru sem tekur hér á móti lófaklappi.



fimmtudagur, 5. júní 2014

Systkinadagar í París

Særún og Pálmar, systkini Fríðu, og Þorbergur, sonur Pálmars, kíktu í heimsókn um síðustu helgi. Hér eru nokkrar myndir:

Þorbergur sáttur með nýja Parísarlúkkið.

Það leið ekki langur tími þar til systurnar byrjuðu að dansa.


Sniglar


Þorbergur á eftir að mastera fókusinn aðeins, nema þetta hafi verið viljandi.

Selfie á ítölskum veitingastað.

Þessa hitti ég á Saint Jean kaffihúsinu í Montmartre meðan systurnar voru að eitthvað vesenast.

Við hittum þær svo um hádegisbilið þar sem þær höfðu komið sér vel fyrir á kaffihúsi við Signu.

Kveikt á kertum í Notre Dame.

Flottir feðgar við Sigurbogann.

Þeir tóku svo leiguhjól að Eiffel.


MJ

Mynd af Þorbergi taka mynd af mér.

Særún og ítalski bjórinn.

Systradekur eftir göngu.

Louvre



Þorbergur segir systrunum hvert skal halda.


Þorbergur stillir vélina.




Ég, alvarlegur.


Kúl lið

Þumall upp á leið upp á flugvöll. Takk fyrir frábæra daga!