Þriðja plata Klassart kom út fyrir skömmu og í kvöld mun hljómsveitin fagna útgáfunni með tónleikum í Kaldalónssal Hörpu. Hljómsveitin hefur síðustu daga æft af fullum krafti fyrir tónleikana en undirbúningurinn nær auðvitað mun lengra aftur. Krakkarnir hafa unnið að plötunni síðustu tvö ár og eru tónleikarnir í kvöld því mikil uppskeruhátíð þar sem öll lögin á plötunni verða spiluð og sögurnar sem þau hafa að geyma sagðar.
Vonandi munu flest ykkar mæta og fagna með systkinunum Fríðu og Smára sem eiga öll lög og alla texta á plötunni. Þau eru þó ekki ein í bandinu. Neineinei. Hljómsveitin telur níu manns og munu allir standa á sviðinu í kvöld og öllum þeim sviðum sem hljómsveitin mun stíga á næstu misserin, en á mánudaginn hefst tónleikaferð um landið. Hin undurfagra Soffía Björg og hljómsveit hennar Soffía Björg Band mun hita upp en ég mæli alls ekki með því að fólk missi af þeirri dásemd.
Hér eru nokkrar myndir frá æfingum síðustu daga sem hafa farið fram í Geimsteini í Keflavík. Sjáumst í Hörpu í kvöld!