sunnudagur, 24. ágúst 2014

Menningarnótt

Ég var ansi spenntur fyrir Menningarnótt þetta árið enda var boðið upp á rúmlega 500 viðburði. Ég náði hins vegar ekki að sjá nema lítið brot af því sem mig langaði að sjá. Tíminn líður alltaf hraðar en mann grunar og svo gleymir maður auðvitað labbinu og þreytunni sem því fylgir. Ég fylgdi Klassart um miðborgina en Fríða og Smári spiluðu á Borgarbókasafninu, Vitatorgi og í Iðu á Lækjargötu. Við fengum okkur svo kaffi og köku áður en við röltum lúin heim, fyrir flugeldasýningu og áður en dagskráin á Arnarhóli hófst.

Borgarbókasafnið. Sennilega minnsta venjú sem Klassart hefur spilað á.

Vitatorg.

Amelía og Soffía

Smári hló bara að þessu, eins og svo mörgu öðru.

Soffía og Örn spiluðu á eftir Klassart á Vitatorgi og svo aftur í Iðu.






Margir stöldruðu við hjá Iðu, hlustuðu á músík og borðuðu sykur.



The Road Home er titill á lagi með Soffíu Björg.

miðvikudagur, 30. júlí 2014

Hótel Fljótshlíð og Hljómahöllin

Um helgina fór ég með Klassart light á Hótel Fljótshlíð þar sem Fríða og Smári spiluðu fyrir sveitunga.








Við gistum í sveitinni en fórum svo í afmæli í Keflavík á laugardagskvöldinu. Þar fagnaði Baldur Þórir fimmtugsafmæli sínu með vinum og vandamönnum í hinu glæsilega rokksafni Hljómahallarinnar. Ég var með vélina á lofti og festi þetta góða partí á filmu.

Rétt fyrir miðnætti hlóð ég inn á tölvuna myndunum sem ég hafði tekið síðustu klukkutímana, valdi um hundrað, lagfærði þær örlítið og varpaði þeim á tjaldið sem var í salnum. Ég bætti svo myndum í safnið um tveimur tímum síðar. Ég hef oft hugsað hvað þetta gæti verið sniðugt og þarna var heldur betur tækifæri til að prófa þetta og mér sýndist fólk hafa gaman að því að skoða myndir sem voru teknar fyrr um kvöldið.

Góð ljósmyndahelgi að baki. Næst á dagskrá: versló í borg óttans!























föstudagur, 25. júlí 2014

Klassart og Markús á Café Flóru

Í Laugardalnum er falin perla sem kallast Café Flóra. Kaffihúsið er í gróðurhúsi í miðjum grasagarðinum þar sem alltaf virðist vera gott veður. Á hverjum fimmtudegi yfir sumartímann fara þar fram tónleikar. Við Fríða spiluðum þar einmitt fyrir fulla húsi síðasta sumar ásamt Johnny and the Rest og Þórunni Antoníu en í kvöld voru það Klassart og Markús & the Diversion Sessions. Fyrir tónleikana tóku báðar hljómsveitirnar upp nokkur lög fyrir verkefnið Reykjavík Sessions. Verkefnið snýst um að taka upp flutning hljómsveita, íslenskra og erlendra, á mismunandi stöðum í borginni en mér skilst að upptökurnar verði aðgengilega á reykjaviksessions.com á komandi vikum.

Fríða hitar flautuna upp.


Reykjavik Sessions


Aðdáandi biður Markús um að reikna.


Fallegt umhverfi.

Fallegar systur.


Lekkert í Laugardalnum.