sápugrænn himinn
hálfur
sitjandi b máninn kona með a moldbrúnn
skærgula r hundurinn
svuntuna n
undir niðri fjall & bær
með
rauðu þaki
scheving
Eftir miklar vangaveltur komumst við að þeirri niðurstöðu að þetta væri kyrr mynd þar sem engar sagnir eru í textanum, sem við töldum vera ljóð. Uppsetningin er líka eins og mynd - ljósmynd eða málverk - en það var ekki fyrr en Þórunn kallaði fram síðasta orðið á glærunni (scheving) sem við föttuðum að textinn lýsti málverki eftir Gunnlaug Scheving. Okkur fannst það stórmerkilegt og við urðum frekar - jafnvel óeðlilega - spennt þegar Þórunn sagðist halda að þetta málverk væri einhvers staðar í húsinu. Strax eftir tímann fórum við að leita í þessu völundarhúsi sem húsið við Stakkahlíð er. Og viti menn, við rákumst á þetta í einum af fjölmörgum stigahúsum byggingarinnar, og tilfinningin var ótrúleg:
(Ath. GS skrifaði ekki undir myndina eins og ljóðið, sem er eftir Gyrði, gefur til kynna)
Mér finnst kennaranámið frábært að mörgu leyti. Stundum er föndrað eða búið til sögur í skolanum og þá get ég tekið eitthvað með mér heim til að sýna fjölskyldunni. Þetta bjó ég til um daginn:
Og þessa sögu skrifaði bekkurinn í sameiningu (ég hló svo mikið í þessum tíma að kennarinn sagði: "Jæja..." þegar ég reyndi að lesa hana upp):
Hvað gerðuð þið í skólanum í dag?




