laugardagur, 5. júlí 2014

EuroMusic Contest 2014

Síðasta sunnudag flaug ég með Klassart til Parísar til að fylgjast með hljómsveitinni keppa í úrslitum í EuroMusic Contest. Klassart tók þátt ásamt um 3200 öðrum evrópskum böndum frá 40 löndum en komst í gegnum atkvæðagreiðslu og niðurskurð og í tíu hljómsveita úrslit sem haldin voru á Le Divan du Monde í Montmartre, París, steinsnar frá íbúðinni sem við Fríðu bjuggum í.

Allar hljómsveitirnar gistu á lúxus sveitasetri sem kallast La Pepiniere og er um klukkutíma frá París. En við höfðum ekki langan tíma til að dást að fegurðinni í grennd því dagskráin var þétt frá morgni til kvölds. Við mættum á setrið rúmlega eitt á sunnudagskvöldinu og voru Fríða og Smári strax dregin í viðtal. Morguninn eftir var ræs klukkan 7:30 og klukkutíma síðar var öllum smalað í rútu sem beið fyrir utan. Hún fór með okkur á tónleikastaðinn þar sem hljóðprufurnar hófust um hádegi. Við fengum örfáa klukkutíma til að ganga um Montmartre og horfa á smá fótbolta fyrir förðun og hljóðprufu Klassart.

Um kvöldið spiluðu hljómsveitirnar tíu svo tvo lög hver og var flutningurinn í beinni útsendingu á netinu. Mér skilst að strímið hafi verið slæmt og erfitt hafi verið að kjósa, en tónleikarnir ásamt viðtölum við listamennina munu fara á netið fljótlega.

Um nóttina fórum við svo aftur á sveitasetrið þar sem margir vöktu þar til þeim var skutlað á lestarstöðina kl. 5:00. Við fórum hins vegar á hótel í París um hádegisbilið og eyddum næstu tveimur dögum í að spóka okkur í góða veðrinu, borða góða matinn og smakka góða vínið. Allt frekar gott.

Ég vil nýta tækifærið og þakka Klassart fyrir frábæra daga, ekki bara í París heldur líka dagana á undan þegar hljómsveitin tók góðan túr um landið sem þurfti einmitt að stytta útaf keppninni. Myndir frá þeirri ferð koma fljótlega, en hér eru nokkrar myndir frá EMC:


Calvin tekur viðtal við syskinin.

Og systkinin taka lagið fyrir vélarnar.

Smári fyrir utan sveitasetrið.

Í rútu á leið til Parísar.

Smá hljómsveitarmyndartaka með þreyttum trommara.

Þorvald langaði að prófa að betra pening. 

Þannig að hann tók armbeygjur með annarri meðan hann sneri trommukjuða í hinni.


Í búðarglugga.

Viðtal á tónleikastaðnum.

Sviðið skreytt.


Fríða gerir sig til baksviðs.

Stemning og spenna í liðinu.



Mennirnir sem sáu um beinu útsendinguna. Eða ekki.


1. TOM JOYCE




2. KLASSART





3. AMAZON ZERO







4. PLUG&PLAY





5. GLASS ANKLE






6. SANJIN BANIC BANE



7. 10 CODE






8. DAUGHTER OF A KING






9. DEEPER UPPER (sigurvegararnir)






10. RMS






Calvin segir brandara.

Calvin kynnir sigurvegarann.

Þessar voru sáttar með úrslitin:

Kúrt á sveitasetrinu.

Þorvaldur sýnir eitthvað spennandi í pöddunni sinni.


Krakkarnir glaðir hjá Louvre.

Fríða notaði vindinn í lestargöngunum til að rokka, rokka feitt.

Montmartrechill.