laugardagur, 27. september 2014

Dave and Gloria in Iceland

Here are a few photos from Dave's and Gloria's short but enjoyable visit to Iceland a few weeks back:

We started the day of in the Blue Lagoon where we put mud in our face while sipping on white wine.

A picknick in the wild.



A visit to Gunnuhver, Gunna's hot spring.



Behind Dave and Gloria is the oldest lighthouse in Iceland, Reykjanesviti.

Pillars of rock next to the lighthouse.




The town of Hafnir where Rúna, my grandmother, was born.

The stairs to the house where Steini, my grandfather, was born in the town of Sandgerði, Fríða's hometown.

Sandgerði.

After a nice sightseeing tour we went to my grandmothers house in Keflavík to celebrate her birthday.


After reading what her present was, a new phone of her choice.


Mom, me, mom's sister Jenný, Gloria, Dave, Steini, Rúna, my sister Guðrún and my stepdad, Gunnar.

Thanks for a great time, Gloria and Dave. Looking forward seeing you next year!

sunnudagur, 7. september 2014

Klassart og Kiriyama Family á Paddy's

Ég fór á tónleika með Klassart og Kiriyama Family á Paddy's síðasta fimmtudag. Þeir voru vonandi skref í átt að því að tónleikavæða þessa krá sem á miklu meira inni. Vonandi fara sveitungar mínir að venja oftar komur sínar á tónleika því það mun leiða til þess að fleiri hljómsveitir munu taka sénsinn og skipuleggja gigg. Og langtímaáhrifin væru þá kannski þau að fleiri hljómsveitir fæðist í þessum fornfræga músíkbæ sem ég held að flestir séu sammála um að hafi munað fífil sinn fegurri í tónlistarbransanum.

Ég hef heyrt útundan mér að stærri hljómsveitir úr höfuðborginni hafi ekki mikið álit á tónleikahaldi Suðurnesjamanna sem er auðvitað ekki gott (KMF er alls ekki eina ástæðan). Þessu þarf að breyta og það verður ekki gert nema með betri aðsókn og meiri fagmennsku heimamanna þegar kemur að tónleikahaldi.

En nóg um það. Hér eru myndir frá tónleikunum sem voru bæði faglegir og vel sóttir:
























sunnudagur, 24. ágúst 2014

Menningarnótt

Ég var ansi spenntur fyrir Menningarnótt þetta árið enda var boðið upp á rúmlega 500 viðburði. Ég náði hins vegar ekki að sjá nema lítið brot af því sem mig langaði að sjá. Tíminn líður alltaf hraðar en mann grunar og svo gleymir maður auðvitað labbinu og þreytunni sem því fylgir. Ég fylgdi Klassart um miðborgina en Fríða og Smári spiluðu á Borgarbókasafninu, Vitatorgi og í Iðu á Lækjargötu. Við fengum okkur svo kaffi og köku áður en við röltum lúin heim, fyrir flugeldasýningu og áður en dagskráin á Arnarhóli hófst.

Borgarbókasafnið. Sennilega minnsta venjú sem Klassart hefur spilað á.

Vitatorg.

Amelía og Soffía

Smári hló bara að þessu, eins og svo mörgu öðru.

Soffía og Örn spiluðu á eftir Klassart á Vitatorgi og svo aftur í Iðu.






Margir stöldruðu við hjá Iðu, hlustuðu á músík og borðuðu sykur.



The Road Home er titill á lagi með Soffíu Björg.