mánudagur, 18. maí 2015
sunnudagur, 7. desember 2014
Jennifer, Yasemin og Zehra á Íslandi
Systur mínar Yasemin og Zehra og Jennifer stjúpmóðir mín komu í heimsókn í nokkra daga í október. Hér eru myndir frá þeirri dásamlegu heimsókn:
Viðey
Þingvellir
Strokkur
Fengum súpu og hvítvín hjá mömmu síðasta daginn
Og rauðvín og vöfflur hjá ömmu og afa á Austurgötunni
mánudagur, 10. nóvember 2014
Hip hip
Þegar sú ákvörðun var tekin að rífa ætti húsið sem hýsti Faktorý til að rýma fyrir nýju hóteli urðu margir fúlir og pirraðir, og ekki síður áhyggjufullir um framtíð grasrótarinnar í íslenskri tónlist. Margir héldu því þó staðfastlega fram að hljómsveitir myndu nýta þá staði sem fyrir voru en aðrir voru ekki jafn bjartsýnir og töldu að færri hljómsveitir myndi dafna í íslensku tónlistarsenunni vegna þessa.
Persónulega sá ég ekki fram á að neinn staður gæti kallað fram þá heimilislegu stemningu sem myndaðist oft á Faktorý því flestir aðrir staðir og barir eru minni og ekki hannaðir með hljómburð í huga. Og svo eru það þeir sem hafa hreinlega ekki áhuga á að hýsa tónleika enda fylgir þeim auðvitað mikill kostnaður sem er falinn í góðu hljóðkerfi, hljóðmönnum, ljósum og öðru. Þar að auki trúði ég því varla að nokkur eigandi myndi vilja eyða peningum og púðri í að hleypa minna þekktum hljómsveitum á svið á föstudags- eða laugardagskvöldi fyrir lítinn sem engan pening, og alls ekki örugga sölu á barnum.
Ég hafði rangt fyrir mér. Upp á síðkastið hefur Húrra tekið við þessu mikilvæga hlutverki. Á síðustu vikum og mánuðum hefur ógrynni hljómsveita komið þar fram, hvort sem það eru vinsæl poppbönd eða minna þekkt pönktríó. Ég eyddi þónokkrum tíma á Húrra í síðasta mánuði að taka myndir og get fullyrt að stemningin minnti óneitanlega á gömlu góðu dagana á Faktorý þar sem maður gat gengið að því vísu að einhver hljómsveit eða listamaður myndi stíga á svið síðar um kvöldið, hvort sem hún héti Of Monsters and Men eða Sing for me Sandra.
Til þeirra sem standa að rekstrinum og bókunum hef ég bara eitt að segja: Húrra!

Geislar
Geislar
Geislar
Geislar
Geislar
Geislar
Geislar
Geislar
Börn
Börn
Kælan Mikla
Kælan Mikla
Kimono
Kimono
Kimono
Kimono
Vio
Vio
Vio
Vio
Himbrimi
Himbrimi
Himbrimi
Himbrimi
Hide Your Kids
Hide Your Kids
Hide Your Kids
Sin Fang
Sin Fang
Sin Fang
Sin Fang
Uni Stefson
Uni Stefson
Uni Stefson
Uni Stefson
Uni Stefson
Uni Stefson
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)