Hvað lærði ég árið 2012? Jú, að ég er ömurlegur að halda hefðbundna dagbók, þrátt fyrir fjölmargar tilraunir og tvö áramótaheit. Fyrir nokkrum dögum rakst ég á gamla bloggið mitt, Vangaveltur blendings, og man hvað mér fannst góð tilfinning að setja punkt aftan við bloggfærslu og senda hana til internetsins. Þar að auki frétti ég að Linda Sæ héldi úti bloggsíðu eins og árið væri 2004 og mér fannst það aðdáunarvert og spennandi. Og í kjölfarið varð þetta fyrirbæri til, Surmelism. Nafnið er fengið að láni frá ættarnafninu mínu, Surmeli, með -isma endingu til aðgreiningar.
Önnur ástæða fyrir þessu bloggi er að ég og Haffi spjölluðum lengi um Facebook fyrr í dag. Honum fannst undarlegt að ég væri ekki þar (hann vissi það samt alveg, en hefur sennilega gleymt því - í þriðja sinn - að ég hætti fyrir rúmi ári síðan) og ég reyndi að koma honum í skilning um að mér fyndist það leiðinlegt til lengdar. Þetta hafi þó verið erfitt fyrst; fólk hélt lengi vel að ég hafi eytt þeim út af vinalistanum þegar það ætlaði að senda boðskort á mig. En eftir um hálft ár höfðu flestir þeir sem skipta mig máli áttað sig á breytingunum sem felast meðal annars í sér að þeir þurfa að hringja í mig til að óska mér til hamingju með afmælið. Það er nú meira óþarfa vesenið!
Eftir þessar umræður fann ég hjá mér knýjandi þörf til að tjá mig og eftir að ég opnaði Instagram-reikning hugsaði ég með mér: nei, þetta er ekki rétta leiðin. Og nokkrum klukkustundum síðar fattaði ég sem sagt að bloggið væri það. Og mikið líður mér vel núna!
Mín kæra Fríða hóf upptökur á sólóplötunni sinni í dag. Haffi er líka á myndinni sem ég tók í Stúdíó Ógæfu, stuttu fyrir fyrrnefndar umræður um fb.

Bravó!
SvaraEyðaVei! Velkomin!
SvaraEyðaKveðja, Linda Sæ.
+n
SvaraEyðaBæ.