mánudagur, 4. febrúar 2013

Merkilegir og ómerkilegir staðir á Íslandi I - HLEMMUR

Ég hélt að ég væri búinn að tæma brunninn með síðustu tveimur færslum þegar ég var beðinn um að skrifa um sögu Hlemms. Og að sjálfsögðu verð ég við þeirri ósk enda þykir mér ósköp vænt um staðinn. Ég er líka frekar hugmyndasnauður bloggari þannig ég hef ákveðið að búa til þennan flokk bloggfærslna sem mun vonandi einhvern tíma telja fleiri en eina færslu. Fyrirmynd að flokknum er vefsíðan Hugi.is en þar skrifa meðlimir um allt og ekkert; margar færslur hefjast til að mynda á orðum eins og: "Sælir strákar. Ég var að skoða Sturlungu og ætla að skrifa nokkur orð um hana..." Fyrirmyndarblogg. Vonandi verður þessi síða jafn handahófskennd og einlæg.

Nafnið Hlemmur vísar til brúarstubbs sem þar var yfir lækinn Rauðará, sem Rauðarárstígur í Reykjavík er kenndur við.

Stuttu eftir stofnun Vatnsveitu Reykjavíkur var sett þar upp vatnsþró fyrir ferðalanga til að brynna hesta sína. Gasstöð Reykjavíkur var svo starfrækt við Hlemm á árunum 1910-1956. Stöðin framleiddi gas úr innfluttum kolum til eldunar og lýsingar. Lýsingin var góð búbót fyrir Reykvíkinga því áður höfðu þeir þurft að sætta sig við steinolíuljósker á stangli sem sumir kölluðu fremur villuljós en götulýsingu. Árið 1918 var settur upp gasgerðarofn við gasstöðina sem nýtti hitann frá gasframleiðslunni sem annars fór til ónýtis. Eftir stofnun Rafmagnsveitu Reykjavíkur árið 1921 var gasið nær eingöngu nýtt til eldamennsku og undir lok fyrri heimsstyrjaldarinnar störfuðu í húsinu fjórir bakarar. Þykir þetta sýna að Íslendingar hafa löngum nýtt hitann í kringum sig.

Í dag er hvorki að finna við Hlemm vatnsþró né bakara, heldur miðstöð strætisvagnasamganga í Reykjavík, lögreglustöð, óreglumenn og klyfjahest sem Sigurjón Ólafsson (1908-1982, sjá Merkilegir og ómerkilegir staðir á Íslandi II - HÖFÐI) hjó til minnis um hina gömu vatnsþró.



1 ummæli: