föstudagur, 15. mars 2013

Af konsertum

Eldar hituðu upp fyrir Ylju á Rósenberg fyrir tveimur vikum. Frábær konsert.

Eldar

Ylja

Tómas R. Einarsson er það líka, þ.e. frábær, bæði sem músíkant og náungi. Við Fríða kíktum á latin jazz bandið hans á Kaffi Haítí síðasta föstudag. Haldiði að ég hafi bara ekki gengið út sem töluvert betri drengur eftir tónleikana. Arnar og Ísabella


voru með okkur og Arnar sannfærði Tómas um að spila á sunnu-jazzinum á Faktorý, sem og hann gerði. Og að sjálfsögðu mættum við; héðan í frá munum við fylgja honum um hvert fótmál.

Latin Jazzzzzz

 Nafni minn og snillingurinn Steini Sax í stuði á sunnu-jazzinum

Á laugardaginn kíkti ég hins vegar á stúdíó-tónleika í boði Klassart. Þá mættu Fríða og Smári í Geimstein og tóku All I need með Air. Alveg hreint stórfínt! Flutningurinn var svo sýndur í keflvíska Landanum, Suðurnesjamagasíni, ásamt viðtali við systkinin.

3 ummæli:

  1. Það geislar af Arnari og Ísabellu!

    SvaraEyða
    Svör
    1. <3 það er ekki annað en hægt að geisla í jafn góðum félagsskap og við vorum, hlustandi á jafn yndislega tóna og dönsuðu fyrir öll skilningarvit. Ekki skemmdi kaffið fyrir!

      Eyða
    2. <3 það er ekki annað en hægt að geisla í jafn góðum félagsskap og við vorum, hlustandi á jafn yndislega tóna og dönsuðu fyrir öll skilningarvit. Ekki skemmdi kaffið fyrir!

      Eyða