Hólmurinn var gullfallegur að vanda en þónokkur þoka gaf vísbendingu um að veðrið yrði hugsanlega ekki frábært yfir helgina. Þegar við Fríða höfðum skilað góða fólkinu í íbúð sem við höfðum leigt í hólminum kíktum við í salinn á Saurum sem við höfðum líka tekið á leigu. Þegar við gengum inn leit salurinn einhvern veginn svona út:
En þegar við ásamt yndislegu fólki höfðum tekið til hendinni á tíma sem samsvarar heilum vinnudegi leit hann sirka svona út:
Á meðan höfðu einhverjir gestir komið sér fyrir á tjaldstæði fyrir utan félagsheimilið og þar var partí um kvöldið. Lengi lifi kúlutjaldið!
Pabbi grillaði svo ofan í okkur íslenskt/tyrkneskt lamb svo við gætum farið södd og sæl að sofa í svítunni okkar á gistiheimilinu Sjávarborg. Kojan við hlið rúmsins stóð auð meðan við horfðum yfir bryggjuna og hafið.
Um morguninn tók ég á móti fyrrverandi konu pabba og Yasemin systur minni, fór í sund og klippingu
borðaði pulsu og setti á mig slaufu áður en við fórum um borð í Særúnu. Þrír prúðbúnir gestir ætluðu í brúðkaup í Baldri sem bakkaði þó aftur að bryggju og skilaði þremenningunum á þurrt land áður en hann sigldi milli eyjanna óteljandi, hafði viðkomu í Flatey og lagðist að bryggju í Brjánslæk.
Á Breiðafirðinum var svo brúðkaup sem afi minn og nafni stýrði af stakri prýði enda staddur á heimavelli. Veðrið var yndislegt eins og fólkið sem ég horfði á frá þessu sjónarhorni:
en það á okkur frá þessu:
Svo var matur og dansiball þar sem hljómsveitin StoneFree spilaði undir dansi. Heimalningur frá Saurum tók þátt en kannski var hann að leita að systkinum sínum sem við höfðum nýlokið við að kyngja:
Hljómsveitin spilaði meira að segja undir dansi hringinn í kringum húsið:
Daginn eftir var boðið upp á egg og beikon og afganga af lömbunum átta. Á þriðjudeginum fórum við svo til sýslumanns til að ganga frá öllum pappírum og segja já aftur og kyssast aftur:
og á miðvikudeginum borðuðum við fyrstu hjónamáltíðina saman:
Fyrir hönd okkar Fríðu
vil ég þakka öllum þeim sem gerðu þessa helgi og viku - og í raun síðustu mánuði - ógleymanlega. Okkur mun ekki endast ævin til að borga ykkur til baka allt það sem þið hafið gert fyrir okkur. Ég vil líka þakka öllum fyrir yndislegar gjafir sem allar (án gríns - hver ein og einasta) komu eða munu koma að góðum notum!
TAKK TAKK TAKK!
Fleiri myndir (smellið til að skoða):














Óska ykkur hjónakornunum eilífrar sælu í mátulegum skömmtum. Munið að lífið er ekki bara leikur heldur líka dans á rósum (Fleksnes).
SvaraEyðaBestu kveðjur,
Takk fyrir það kæri Helgi. Þetta hefur gengið vel hingað til og vonandi munu hveitibrauðsdagarnir endast út lífið.
SvaraEyðaGóðan dag herra Surmeli Árnason. Höfuðpaurar Utrechtráðuneytisins velta því nú fyrir sér hvort ekki sé ráð að endurvekja skilaboðaskjóðu þessa og blása þannig lífi í hjörtu hinna týndu sála. Að launum hlýtur þú virðingu mikla, eina kind og boxy strokleður.
SvaraEyðaGóðar stundir
Búinn. Hlakka til að fá kindina í hendurnar og svo ofan í maga.
SvaraEyðaHahaha...
SvaraEyða