miðvikudagur, 16. júlí 2014

Hringferð um geiminn

Þann 23. júní 2014 lögðu hljómsveitirnar Klassart og Soffía Björg Band af stað í hringferð um landið til að fylgja eftir þriðju breiðskífu Klassart, Smástirni. Ég laumaði mér með og tók nokkrar myndir af þessu geimævintýri.


23/6 BORGARNES

Fyrstu tónleikarnir voru í Borgarnesi. Hér eru Fríða og Smári að hita bæjarbúa upp fyrir utan Nettó. Þorvaldur Bjarni fylgist grant með.

Svalir að tjilla.

Svalir að kaupa krabbadjús.




Eftir tónleikana í Borgarnesi var stefnan sett á Svarfaðardal þar sem við gistum næstu tvær nætur.


24/6 SIGLUFJÖRÐUR

Frú Sigríður á Tjörn tók vel á móti okkur og sýndi okkur meðal annars kirkjuna á bænum.

Amelía og Fríða.

Eftir stutt stopp en góðan svefn í Svarfaðardal var stefnan sett á Siglufjörð þar sem næstu tónleikar fóru fram. Við sögðum þó ekki skilið við dalinn fagra alveg strax.



Einvígið.

Miðnæturrölt að Tjörn frá bústaðnum sem við gistum í.

Á Tjörn hélt frú Soffía lífi í bálinu sem hún og Þorvaldur kveiktu.

Fallegar mágkonur.

Fallegt par.

Soffía sækir meiri eldivið.

Á Tjörn var sungið

og hlegið.



Og þá hefst myndaserían Hoppað yfir eld í Svarfaðardal milli 3 og 4 á Jónsmessunótt.







25/6 DALVÍK

Næstu tónleikar fóru fram á Dalvík. Hér eru Fríða og Smári að spila fyrir fólkið í Dalbæ.

Tónleikarnir fóru fram í leikhúsinu á Dalvík. Hér er þessi fallegi salur tómur enda sándtjekk í gangi.



Það er fátt skemmtilegra en að taka myndir af Erni í náttúrunni. Hann er eitthvað svo... náttúrulegur.

Borðað á Við höfnina.




Frændur í góðum gír.


Örn í náttúrunni og náttúran í Erni.

Bústaðurinn.


26/6 AKUREYRI

Næstu tónleikar voru á Græna hattinum á Akureyri. Hér er Soffía í spegli.

Hér er Fríða í spegli.









Við gistum í lúxusbústaði hinum megin við Pollinn.

Þetta er útsýnið úr pottinum. #örnognáttúran



Einhvern veginn svona borða rokkarar ís.

Hvíld eftir rót.


27/6 VOPNAFJÖRÐUR

Næsta stopp: Vopnafjörður.








Förinni var svo heitið til Parísar þar sem Klassart tók þátt í EuroMusic Contest.

Takk fyrir frábæran túr!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli