mánudagur, 1. apríl 2013

Keflavík

Það er ekki hægt að fá sér kaffi út í bæ fyrir hádegi í Keflavík. Bókasafnið býður að vísu upp á frítt, uppáhellt kaffi. En það er ekki það sem ég og æskuvinur minn vorum að leita að þegar við vildum spjalla um gömlu dagana í bænum, ástina, páskana og Hemingway - fyrir hádegi.

Hér er gömul mynd af mér:



föstudagur, 22. mars 2013

Stykkishólmur 1/44

Á Íslandi eru margir fallegir bæir en fáir jafn glæsilegir og fríðir og Stykkishólmur. Við Fríða gerðum okkur ferð þangað um síðustu helgi ásamt mömmu og stjúpa til að athuga raka moldarinnar og annað fyrir brúðkaupið í sumar.


Mamma kom auðvitað með heilsunesti (samt var það hún sem stakk upp á því að við fengjum okkur bensínstöðvarpulsu)


Við fórum niður á bryggju að leita að bátnum sem við höfum tekið á leigu en hann var ekki að finna. Við, niðurlút og í spreng, sníktum því kaffi og með því í gullfallegu húsi í bænum og hvað haldiði að við höfum séð út um eldhúsgluggann? Auðvitað var það Særún (bátinn þ.e.a.s., ekki systur brúðarinnar - eins og sést kannski betur á næstu mynd):



Partísalurinn Skjöldur á Saurum þar sem Eminem og Iron Maiden munu trylla lýðinn

fimmtudagur, 21. mars 2013

Merkilegir og ómerkilegir staðir á Íslandi II - HÖFÐI

Munið eftir stefnuyfirlýsingunni í fyrstu færslu þessa flokks: Fyrirmyndin er vefsíðan Hugi.is en þar skrifa meðlimir um allt og ekkert; margar færslur hefjast til að mynda á orðum eins og: "Sælir strákar. Ég var að skoða Sturlungu og ætla að skrifa nokkur orð um hana..." Fyrirmyndarblogg. Vonandi verður þessi síða jafn handahófskennd og einlæg.

Franski konsúllinn Jean-Paul Brillouin reisti Höfða árið 1909 og bjó þar í stuttan tíma. Árið 1914 keypti Einar Benediktsson skáld húsið og bjó þar í nokkur ár. Eftir það voru ýmsir eigendur: Títanfélagið átti það um skeið, félagið sem Einar stofnaði og átti að annast virkjanadrauma hans, svo Matthías Einarsson læknir, faðir Louisa Matthíasdóttir listmálara sem ólst þar upp.

Rétt fyrir seinni heimsstyrjöldina keyptu Bretar húsið og gerðu að sendiráðsbústað. Einn sendiráðherrann varð var við svo mikinn draugagang að hann fór fram á að húsið yrði selt og það varð. Reykjavíkurborg keypti húsið á sjötta áratugnum en þá var það komið í mikla niðurníðslu og höfðust þar jafnvel rónar við (sjá Merkilegir og ómerkilegir staðir á Íslandi I - HLEMMUR). Þá var ákveðið að gera það upp og gera að móttökuhúsi fyrir Reykjavíkurborg.

Mönnum greinir á um það hvort það hafi verið Ronald Reagan eða Gorbatsjovs sem átti hugmyndina að vali Reykjavíkur sem fundarstaðar í október 1986. Hvað sem því líður var fundurinn einhver merkasti leiðtogafundur tuttugust aldarinnar og hann átti stóran þátt í falli heimsveldis hins illa, hruni kommúnismans í Evrópu og endalokum kalda stríðsins. Fjölmiðlar um víða veröld eru sammála um að fundurinn í Höfða hafi skipt sköpum í stjórnmálasögu síðustu aldar. Fundurinn kom Íslandi varanlega á heimskortið og hann markaði einnig upphaf góðrar og langvarandi vináttu milli leiðtoganna tveggja.

Fimm árum síðar, eða í ágúst 1991, komu utanríkisráðherrar Eystrasaltsríkjanna til fundar í Höfða, en þá var sjálfstæðisbarátta ríkjanna á lokastigi. Á fundi þeirra viðurkenndu Íslendingar sjálfstæði Eyrstrarsaltsríkjanna, fyrstir allra þjóða.

Á túninu við Höfða stendur listaverkið Öndvegissúlur eftir Sigurjón Ólafsson (sjá Merkilegir og ómerkilegir staðir á Íslandi I - HLEMMUR). Súlurnar tvær minna Á leiðtogana tvo en flestir tengja þær þó við öndvegissúlur fyrsta landnámsmanns Íslands, Ingólf Arnarsonar, sem ráku á land þar við ströndina.






föstudagur, 15. mars 2013

Af konsertum

Eldar hituðu upp fyrir Ylju á Rósenberg fyrir tveimur vikum. Frábær konsert.

Eldar

Ylja

Tómas R. Einarsson er það líka, þ.e. frábær, bæði sem músíkant og náungi. Við Fríða kíktum á latin jazz bandið hans á Kaffi Haítí síðasta föstudag. Haldiði að ég hafi bara ekki gengið út sem töluvert betri drengur eftir tónleikana. Arnar og Ísabella


voru með okkur og Arnar sannfærði Tómas um að spila á sunnu-jazzinum á Faktorý, sem og hann gerði. Og að sjálfsögðu mættum við; héðan í frá munum við fylgja honum um hvert fótmál.

Latin Jazzzzzz

 Nafni minn og snillingurinn Steini Sax í stuði á sunnu-jazzinum

Á laugardaginn kíkti ég hins vegar á stúdíó-tónleika í boði Klassart. Þá mættu Fríða og Smári í Geimstein og tóku All I need með Air. Alveg hreint stórfínt! Flutningurinn var svo sýndur í keflvíska Landanum, Suðurnesjamagasíni, ásamt viðtali við systkinin.

laugardagur, 23. febrúar 2013

Fríða og Klassart í Pálsson og litli

Það skiptir ekki máli hvenær unnusta mín opnar munninn, hún hljómar alltaf unaðslega. Hún hljómar  sérstaklega vel í útvarpi, og hvað þá eftir tíu daga veikindi. Það er fátt betra en að byrja laugardaga á ferð í Útvarpshúsið.


Systkinin spiluðu Pays du Rêve eftir Fridu og lag sem hefur ekki enn fengið titil eftir Klassart.

Og svo blúsuðu þau sig út úr Útvarpshúsinu:


Hér er hægt að hlusta á viðtalið og lögin:

Simmi

Ég fór á Edduna í fyrsta skipti um síðustu helgi og sat við hliðina á Simma í Simma og Jóa og frú. Hann hló manna mest þegar Steindi kyssti alla á sviðinu, svo mikið að það fór um frúnna - og mig líka reyndar - sem reyndi að róa sinn mann niður.

Ég fór í Hörpu með þessu yndislega og rauða fólki. Svarfdælingurinn var tilnefndur en vann ekki enda eru þetta bara asnalega verðlaun.



sunnudagur, 17. febrúar 2013

Düğün

Ástin í lífi mínu og tilvonandi eiginkona mín tók bónorði mínu á föstudaginn. Á baugfingri ber hún hring sem pabbi gaf mömmu fyrir tæpum þremur áratugum. Hringurinn er frá Tyrklandi og kemur sennilega frá ömmu minni (þetta hlýtur að rifjast upp fyrir pabba).


mánudagur, 11. febrúar 2013

Pays de Rêve

Sumum finnst gott að nýta helgina til að hvíla lúin bein og safna kröftum fyrir komandi vinnuviku. Jújú, það er fínt. En það er líka fínt að taka upp tónlistarmyndband frá morgni til kvölds og bruna svo beint í útskriftarveislu aldarinnar. Myndbandið er við lag Fríðu, Pays de Rêve, sem var tekið upp í Stúdíó Ógæfu í þarsíðustu viku. Myndbandið verður tilbúið í þessari viku og er stefnt á frumsýningu á lagi og vídjói næsta föstudag, 15. feb.


Særún tók myndbandið upp og ég gerði eitthvað, t.d. að raða upp borðum. Hvorugt okkar hefur gert svona áður (ég hef að vísu komið við sögu í íslenskum og erlendum kvikmyndum, en þá hinum megin við linsuna; það er efni í aðra færslu) og því var öll uppsetning frekar amatör; mónitorinn er á neðsta borðinu, myndavélin á efsta:


Þar sem við vorum með myndvarpa í litlu 53m2 íbúðinni okkar, og öll húsgögn á röngum stað, nýttum við tækifærið og sendum pabba litla afmæliskveðju.


Og hér er útskriftarparið fína (ég veit ekki afhverju þau völdu okkar gjöf fyrir myndatökuna):


Ég tók orminn í veislunni og Linda Sæ tók hann upp. Í kjölfarið sömdum við um að einu sinni í viku myndi hún pósta ormamyndbandi af mér sem verður aldrei tekið á sama stað. Skrifað var undir fleiri bloggsamninga þetta kvöld; bloggið hefur risið upp úr ösku sinni!