Gamli maðurinn við brúna
eftir Ernest Hemingway
Við veginn sat gamall maður í rykugum fötum og með brún spangargleraugu. Nálægt honum var flotbrú sem vagnar, vörubílar, menn, konur og börn fóru yfir. Hermenn ýttu á teina þungu vagnanna sem asnar drógu upp brattan fljótsbakkann. Ryk þyrlaðist upp þegar vöruflutningabílarnir óku burt og bændurnir tóku þung skref í djúpri moldinni. En gamli maðurinn sat sem fastast. Hann var of þreyttur til að fara lengra.
Það var hlutverk mitt að fara yfir, kanna vígsvæðið handan brúarinnar og athuga framsókn óvinahersins. Þetta gerði ég og sneri svo aftur yfir brúna. Færri vagnar voru þá á hreyfingu og aðeins örfáir fótgangandi á ferli, en gamli maðurinn var þarna enn.
„Hvaðan kemurðu?“ spurði ég.
„Frá San Carlos,“ svaraði maðurinn brosandi.
Það var heimabær hans og það veitti honum því ánægju að minnast á hann.
„Ég var að sjá um dýr,“ útskýrði hann.
„Nú,“ sagði ég án þess að skilja nákvæmlega hvað hann átti við.
„Já,“ sagði maðurinn, „ég hélt sem sagt áfram að sjá um dýrin. Ég var sá síðasti sem yfirgaf San Carlos.“
Hann leit ekki út eins og fjárhirðir eða smali. Ég leit á rykugu, svörtu fötin hans, gráa, öskubarða andlitið og gleraugun og spurði: „Hvaða dýr voru það?“
„Alls konar dýr,“ svaraði hann og hristi höfuðið. „Ég varð að skilja þau eftir.“ Ég leit á brúna og landslag Ebro Delta votlendisins handan hennar sem minnti á Afríku, velti fyrir mér hversu langur tími myndi líða þar til maðurinn kæmi auga á óvininn og hlustaði eftir hljóðunum sem myndu berast frá fyrstu snertingunni, því dularfulla fyrirbæri; en gamli maðurinn sat þarna enn.
„Hvaða dýr voru það?“ spurði ég.
„Þetta voru þrjú dýr í heildina,“ útskýrði maðurinn, „tvær geitur og köttur. Svo voru fjögur pör af dúfum.“
„Og þú varðst að skilja þau eftir?“ sagði ég í spurnartón.
„Já. Út af stórskotabyssunum. Herrann sagði mér að fara út af stórskotabyssunum.“
„Og áttu enga fjölskyldu?“ spurði ég og horfði á árbakkann hinum megin þar sem síðustu vagnarnir fóru niður með hraði.
„Nei,“ svaraði maðurinn, „aðeins dýrin sem ég sagði þér frá. Kötturinn mun auðvitað spjara sig. Kettir geta séð um sig sjálfir. En ég get ekki ímyndað mér hvað mun verða um hin.“
„Hvar stendurðu í stjórnmálum?“ spurði ég.
„Hvergi,“ svaraði hann. „Ég er sjötíu og sex ára gamall. Ég hef ferðast tólf kílómetra og ég held ég geti ekki haldið áfram.“
„Hér er ekki gott að nema staðar,“ sagði ég. „Ef þú treystir þér geturðu farið lengra upp veginn; við afleggjarann til Tortosa finnurðu vörubíla.“
„Ég mun bíða um stund,“ sagði hann, „og svo mun ég fara. Hvert stefna vörubílarnir?“
„Í átt að Barcelona,“ svaraði ég.
„Ég þekki engan í þeirri átt,“ sagði hann, „en ég þakka þér kærlega fyrir. Takk.“
Hann horfði á mig með tómum og þreyttum augum og sagði svo – í augljósri þörf til að deila áhyggjum sínum: „Kötturinn mun spjara sig, það er ég viss um. Það er engin ástæða til að vera órólegur vegna hans. En hin, hvað heldur þú að verði um hin?“
„Þau munu örugglega komast lífs af.“
„Heldurðu það?“
„Af hverju ekki,“ sagði ég meðan ég horfði á árbakkann þar sem enga vagna var lengur að sjá.
„En hvað munu þau gera í stórskotahríðinni? Mér var nefnilega sagt að fara út af stórskotahríðinni.“
„Skildurðu dúfnabúrið eftir opið?“ spurði ég.
„Já.“
„Þá munu þær fljúga.“
„Já, þær munu áreiðanlega fljúga. En hin. Það er betra að hugsa ekki um hin,“ sagði hann.
„Ef þú hefur hvílt þig skaltu fara,“ brýndi ég fyrir honum. „Stattu nú upp og reyndu að ganga burt.“
„Þakka þér,“ sagði hann og stóð upp, vaggaði til hliðanna og settist aftur í rykið.
„Ég var að sjá um dýrin,“ sagði hann dauflega, án þess að beina orðum sínum sérstaklega til mín. „Ég var bara að sjá um dýrin.“
Það var ekkert hægt að gera fyrir manninn. Það var páskadagur og fasistarnir sóttu hart í átt að Ebrofljóti. Dagurinn var þungbúinn og grár. Það var lágskýjað og orustuvélarnar því ekki á lofti. Það, og sú staðreynd að kettir geta séð um sig sjálfir, var eina gæfan sem gamli maðurinn myndi nokkurn tíma njóta.
–––
The Old Man at the Bridge: © Ernest Hemingway 1938
Þýðing: © Þorsteinn Surmeli 2013
Athugasemd I: Sigurður A. Magnússon hefur áður þýtt þessa sögu. Þýðing hans birtist í safninu Snjórinn á Kilimanjaró og 23 aðrar sögur sem kom út árið 2004. Það var skemmtilegt að komast að því þegar ég var búinn með mína þýðingu. Það vantar íslensk bókasöfn í París!
Athugasemd II: Í sumum útgáfum heitir sagan Old Man at the Bridge, sem sagt án greinis. Mér finnst flottara að hafa greini.