mánudagur, 17. mars 2014

Af fótaböðum og frönskum þjóðaríþróttum

Síðustu helgi eyddi ég með fórnfúsum íþróttamönnum, bæði frönskum og íslenskum. Á fimmtudaginn fékk ég boð um að horfa á Róbert Gunnarsson, Ásgeir Örn og fleiri góða í PSG taka á móti St. Raphael með Arnór Atlason í broddi fylkingar. Því gat ég auðvitað ekki hafnað enda hafði ég aldrei áður farið á handboltaleik og mér fannst tilvalið að hefja þann feril í París. Ég vildi vera vel undirbúinn og byrjaði því daginn á fótabaði í bláum bala:


Við Freyr tókum svo metró að Stade Pierre de Coubertin þar sem leikurinn fór fram. Íslenskir fjölmiðlar fjölluðu um mengunina í París um helgina og þá ákvörðun yfirvalda að bjóða frítt í allar almenningssamgöngur. Það var vissulega þægilegt en hafði þó þessar afleiðingar í för með sér:


Allir tóku metró, líka þessi:


Yfirvöld gripu þó ekki til þessara aðgerða fyrr en á föstudaginn og fór því vel um okkur á leið okkar á þennan Íslendingaslag þar sem við sáum Mikkel Hansen reyna þrumuskot og fá um leið kjaftshögg:


Mig minnir að boltinn hafi farið í slána en að Róbert hafi náð frákastinu og skorað með flikk flakk heljarstökki sem áhorfendur fögnuðu ákaft:


Gunnar Róbertsson fylgdist auðvitað með pabba sínum slá í gegn:


Eftir leikinn


hittum við Íslendingana þrjá sem Freyr tók jafnframt viðtal við:


Eins og sést bauð hann upp á líflegt og skemmtilegt handboltaspjall sem hægt er að hlusta á með því að smella á mína fyrstu fréttaljósmynd:

IceFight

Á laugardaginn hittum við leigusalann okkar á amerískum pöbb í mýrinni þar sem við horfðum á franska landsliðið í rugby tapa fyrir því írska. Ég hef aldrei áður horft á heilan rugby-leik og komst að því að íþróttin er ekki aðeins flókin heldur líka frekar brútal:


Við Fríða horfðum svo á ansi leiðinlegan fótboltaleik í gær. Handbolti og rugby er málið.

sunnudagur, 9. mars 2014

Svarthvítt vor í París II

Það hefði verið ansi dónalegt af mér að fara ekki út úr húsi í dag, enda fór hitinn yfir tuttugu stig. Ég gekk um Montmartre og furðaði mig á öllum ferðamönnunum sem eru hingað komnir svo snemma árs. Ég þori varla að ímynda mér hvernig ástandið mun vera um páskana.

Þessi ákvað að sitja úti í dag:


Og þessi treysti sér ekki til að fara alla leið á topp:


Á næstu mynd var ég kominn á toppinn og þar gengur fólk í eina átt:


Og þar mála menn myndir:




Tveir hressir í lausu lofti:


Þó að það hafi verið heitt fengu ekki allir ís:


Vinkona mín fær að vera í lit:



Málin rædd:


Héðan í frá mun ég liggja svona á auðum bekkjum:


Og ein selfie í lokin:




miðvikudagur, 5. mars 2014

Svarthvítt vor í París I

Það er ekki leiðinlegt að ganga um hverfið okkar þessa dagana. Vorið nálgast óðum og veðrið, fólkið og stemningin úti á götu ber þess merki. Breiðgatan iðar af lífi sem einhver þarf auðvitað að festa á filmu. Allar myndirnar eru teknar á Boulevard de Rochechouart og hliðargötum við hana:

McDonald's

McDonald's

Þessi tvö.

Hér sést maður burðast með öll heimsins vandamál á herðum sér.

Konan kippti sér lítið upp við það þegar bíllinn fyrir framan hana klessti á bílinn fyrir aftan þegar bílstjórinn reyndi að bakka í þrengsta stæði sem ég hef séð. Við höggið áttaði bílstjórinn sig á að hann gat ómögulega komið bílnum betur fyrir í stæðinu, stökk út, læsti bílnum og gekk upp fjölsóttustu túristagötu Montmartre. Þegar þessi mynd er tekin er bílstjórinn farinn.

Hér sést hvernig ruslakarlar breyta mönnum í dúfur.

Lífleg blómasala við metróstöð.

Hide in Peace. Ummerki Space Invader leynast víða.

Þessi treysti sér ekki yfir götuna og ákvað því að standa þarna í nokkrar mínútur meðan maðurinn fyrir aftan hann valdi blóm fyrir eiginkonuna.

Betlarar eiga lika gemsa og vini. Að sjálfsögðu.

Ég læt ykkur vita í myndum þegar vorið heldur áfram.

þriðjudagur, 18. febrúar 2014

Afmælishelgi

Fríðu fannst ekki leiðinlegt að vakna í draumaborginni á tuttugusta og sjöunda afmælisdeginum síðasta laugardag. Og það fannst mér ekki heldur. Við gerðum margt yfir daginn, skoðuðum t.d. óperuna,


keyptum demanta í Galeries Lafayetta,


borðuðum á stað sem krefst þess ekki endilega að kúnnar klæði sig upp,


hlustuðum á alls kyns músík,


horfðum á fólk detta fyrir utan Hôtel de Ville,


fórum ekki á sýningu með ljósmyndum Brassaï,


horfðum á fólk við Signu,


horfðum hvort á annað við Signu,


horfðum niður á Signu


og drukkum vin rouge við Signu


með þessum stuðbolta:


Við fórum svo út að borða á franskasta torginu í París, fengum óskalög, drukkum vin rouge og gerðum heiðarlega tilraun til að leysa flest heimsins vandamál langt fram undir morgun. Á sunnudeginum hittum við vini við Sacre Coeur þar sem þessi tók á móti okkar:


Og þessi:


Í mannmergðinni fundum við loks fólkið sem við leituðum að:


Og drukkum með þeim vin rouge, borðuðum ítalskan mat og töluðum um Ólympíuleikana.


Helgin var frábær; TAKK fyrir hana Fríða, Þorri og Sibba.

laugardagur, 15. febrúar 2014

Tvöfalt tímaflakk

Í síðustu færslu sagði ég frá göngu okkar Fríðu að Sigurboganum. Við löbbuðum út Boulevard de Rochechouart sem verður að Boulevard de Clichy sem verður að Boulevard des Batignolles sem verður að Bouldevard des Courcelles. Við enda einnar hliðargötunnar af síðastnefndu breiðgötunni sá ég fallega kirkju sem ég af einhverjum ástæðum tók mynd af, en ég er ekki beint vanur að taka myndir af kirkjum:


Í kvöld horfðum við Fríða á Midnight in Paris. Í myndinni koma fyrir kunnuglegar byggingar, götur og búðir sem var gaman að geta borið kennsl á. En eitt atriði fékk mig til að frussa rauðvíni:


Af sjónarhorninu að dæma hef ég staðið við afturenda bílsins þegar ég tók myndina, sirka tveimur metrum frá Owen Wilson. Ég veit hreinlega ekki hvað mér á að finnast um þessa tilviljun. Það er ekki eins og þetta sé Eiffel eða Notre Dame, þetta er einhver kirkja í 17. hverfi sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir (ég hef reyndar fundið út að hún heitir Cathédrale Saint-Alexandre-Nevsk, en það skiptir ekki máli hér).

Þessar myndir eru teknar með fjögurra daga millibili. Eða þriggja ára.

þriðjudagur, 11. febrúar 2014

Boginn og borgin

Ég hef áður skrifað um Sigurbogann. Þá tók ég metró að honum en í gær gengum við Fríða héðan frá Boulevard de Rochechouart:


Við fórum upp á topp, horfðum yfir borgina


og fylgdumst með umferðinni á háannatíma. Hringtorgið sem umlykur bogann leit svona út klukkan hálfsex:


Lætin og bílflauturnar fluttu fyrir okkur hrátt pönk en umferðin á Champs-Élysées lék hefðbundinn og taktfastan djass:


Á toppi bogans sést hversu vel borgin er skipulögð. Breiðgöturnar tólf sem liggja frá minnismerkinu mynda fullkomna samhverfu


og það væri nær ómögulegt að vita í hvaða átt er horft, ef það væri ekki fyrir háhýsaþyrpinguna (og svarta turninn í Montparnasse) sem er eins og lýti á annars fallegri borg, eins og Freyr Eyjólfsson fjallaði um í nýlegum pistli. Er of seint að endurskipuleggja Reykjavík?

fimmtudagur, 30. janúar 2014

The Desert Dessert með The Dykes

Einu sinni var ég í pönkhljómsveitinni The Dykes, eins og ég hef áður fjallað um. Ég er loksins búinn að gera koverið fyrir fyrstu plötuna, The Desert Dessert. Nú þurfum við bara að semja lögin, Ragga og Mundi.




miðvikudagur, 22. janúar 2014

Jesús úr mörgum

Hér er myndband af ljósmyndaranum og hönnuðinum Jeremy Cowart leika listir sínar í Photoshop. Gott stöff: