Sumum finnst gott að nýta helgina til að hvíla lúin bein og safna kröftum fyrir komandi vinnuviku. Jújú, það er fínt. En það er líka fínt að taka upp tónlistarmyndband frá morgni til kvölds og bruna svo beint í útskriftarveislu aldarinnar. Myndbandið er við lag Fríðu, Pays de Rêve, sem var tekið upp í Stúdíó Ógæfu í þarsíðustu viku. Myndbandið verður tilbúið í þessari viku og er stefnt á frumsýningu á lagi og vídjói næsta föstudag, 15. feb.
Særún tók myndbandið upp og ég gerði eitthvað, t.d. að raða upp borðum. Hvorugt okkar hefur gert svona áður (ég hef að vísu komið við sögu í íslenskum og erlendum kvikmyndum, en þá hinum megin við linsuna; það er efni í aðra færslu) og því var öll uppsetning frekar amatör; mónitorinn er á neðsta borðinu, myndavélin á efsta:
Þar sem við vorum með myndvarpa í litlu 53m2 íbúðinni okkar, og öll
húsgögn á röngum stað, nýttum við tækifærið og sendum pabba litla
afmæliskveðju.
Og hér er útskriftarparið fína (ég veit ekki afhverju þau völdu okkar gjöf fyrir myndatökuna):
Ég tók orminn í veislunni og
Linda Sæ tók hann upp. Í kjölfarið sömdum við um að einu sinni í viku myndi hún pósta ormamyndbandi af mér sem verður aldrei tekið á sama stað. Skrifað var undir fleiri bloggsamninga þetta kvöld; bloggið hefur risið upp úr ösku sinni!