að skoða olíu
Á Hólminum borðuðum við hamborgara og drukkum allskonar. Um ellefu-leytið brá Fríða sér niður á neðri hæð veitingastaðarins og vann og skilaði verkefni eftir að hafa drukkið stærsta rauðvínsglas sem allir á staðnum höfðu séð. Vel gert Fríða, virkilega vel gert.
Svo var auðvitað eftirpartí á hótelherbergi einhvers þar sem menn og konur (þó aðallega Bjössi) vöfðu sig inn í gluggatjöld (Bjössi var reyndar sá eini sem gerði það):
Á laugardeginum fengum við leiðsögn um bæinn sem endaði á Vatnasafninu. Sýningin þar var áhugaverðara en fólk hélt; flestir tóku t.d. myndir í gegnum vatnssúlurnar eftir færeyska staupið og súra hvalinn hans Jógvans sem næstum allir héldu í líkamnum en alls ekki allir.
og var því ítrekað beðinn um að fleygja mér á gólfið:
Svo keyrðum við heim, fyrst í svona veðri
og svo svona:
Við eyddum svo sunnudeginum á Kaffi Ást á Akranesi þar sem ríkti þungbær sorg. Að öðru leyti var helgin frábær eða frábær.









Frábær eða fokking best!
SvaraEyðaÞetta var æðisleg ferð! Kv. Silja Johnsdóttir
SvaraEyðaég í vatnasúlu:
SvaraEyðahttps://fbcdn-sphotos-f-a.akamaihd.net/hphotos-ak-ash4/300219_375918209966_1873668096_n.jpg
p.s. ég veit ekki hvort þú sérð myndina. albúmið er lokað. ég lifi á brúninni.
Jú, ég sé. Er þetta ekki langjökulvatnið?
SvaraEyða