þriðjudagur, 9. apríl 2013

Stykkishólmur 2/44

Á föstudaginn lögðum við Fríða, ásamt Önnu Alberts og Silju (hvers dóttir?), af stað í átt að tilvonandi heimabæ okkar Fríðu - og kannski Önnu og Silju, ég veit það ekki -, Stykkishólm. Við ákváðum að fara aðra leið að hólminum; keyrðum hringveginn í norðaustur, beygðum inn á veg 60 og þaðan 54. Örlögin hafa augljóslega gripið í taumana því á veginum voru hátt á annan tug íslenskra hesta sem virtust hlaupa stefnulaust í suðurátt (sem hljómar skringilega en þannig var þetta). Silja greip í símann, hringdi í Neyðarlínuna (eins og gert er þegar maður sér hesta) og tilkynnti að hópur íslenskra hesta væri laus í íslenskri náttúru, rétt vestan við bæinn Bæ.



að skoða olíu

Á Hólminum borðuðum við hamborgara og drukkum allskonar. Um ellefu-leytið brá Fríða sér niður á neðri hæð veitingastaðarins og vann og skilaði verkefni eftir að hafa drukkið stærsta rauðvínsglas sem allir á staðnum höfðu séð. Vel gert Fríða, virkilega vel gert.


Svo var auðvitað eftirpartí á hótelherbergi einhvers þar sem menn og konur (þó aðallega Bjössi) vöfðu sig inn í gluggatjöld (Bjössi var reyndar sá eini sem gerði það):


Á laugardeginum fengum við leiðsögn um bæinn sem endaði á Vatnasafninu. Sýningin þar var áhugaverðara en fólk hélt; flestir tóku t.d. myndir í gegnum vatnssúlurnar eftir færeyska staupið og súra hvalinn hans Jógvans sem næstum allir héldu í líkamnum en alls ekki allir.


Svo var drukkið og dansað. Ég hef aldrei tekið orminn jafn oft á svo stuttum tíma enda þótti ég frekar glæsilegur og karlmannlegur í árshátíðarmyndbandinu


og var því ítrekað beðinn um að fleygja mér á gólfið:


Svo keyrðum við heim, fyrst í svona veðri


og svo svona:


Við eyddum svo sunnudeginum á Kaffi Ást á Akranesi þar sem ríkti þungbær sorg. Að öðru leyti var helgin frábær eða frábær.


4 ummæli:

  1. Þetta var æðisleg ferð! Kv. Silja Johnsdóttir

    SvaraEyða
  2. ég í vatnasúlu:
    https://fbcdn-sphotos-f-a.akamaihd.net/hphotos-ak-ash4/300219_375918209966_1873668096_n.jpg

    p.s. ég veit ekki hvort þú sérð myndina. albúmið er lokað. ég lifi á brúninni.

    SvaraEyða
  3. Jú, ég sé. Er þetta ekki langjökulvatnið?

    SvaraEyða